Fyrir leik
Það var rætt við Aron Snæ eftir fyrri leikinn
Hægt er að sjá viðtal hér fyrir neðan við Aron Snæ, sem lagði upp á Sigurð Egil, í fyrri leiknum. Einnig var talað um seinni leikinn og framhaldið í viðtalinu.
09.09.26 19:55
Aron Snær: Byrjum á að klára tímabilið og svo tek ég stöðuna
Fyrir leik
Stór mistök dómarans í fyrri leiknum
Á 3. mínútu í fyrri leik Njarðvíkur og Þróttar í kom upp stórt atvik þegar Þórhallur Ísak Guðmundsson, markvörður Þróttar, gerðist brotlegur gegn Oumar Diouck sem var að sleppa í gegn. Hægt er að lesa nánar um atvikið og sjá það hér fyrir neðan.
Fyrir leik
Þróttarar höfðu betur í fyrri leiknum
Fyrri leikur liðanna var spilaður á JBÓ vellinum þann 9. september. Það var hart barist og Þróttarar fóru með sigur af hólmi eftir mark frá Sigurði Agli. Aron Snær, sem hefur verið funheitur undanfarið, fékk boltann við vítateiginn og sendi baneitraðan bolta á Sigurð Egil sem stýrði boltanum í netið. Ekki voru mörkin fleiri í fyrri leiknum en vonandi fáum við helling af mörkum í dag!


Fyrir leik
Dómarateymið
Elías Ingi Árnason er með flautuna. Honum til halds og trausts eru Arnþór Helgi Gíslason og Kári Mímisson.
Brynjar Þór Elvarsson er fjórði dómari og Þórður Ingi Guðjónsson eftirlitsmaður.

Brynjar Þór Elvarsson er fjórði dómari og Þórður Ingi Guðjónsson eftirlitsmaður.

Fyrir leik
Sæti í úrslitaleiknum í húfi!
Heil og sæl lesendur góðir og verið velkomin í beina textalýsingu frá Pepsi vellinum í Laugardal. Í dag eigast Þróttur og Njarðvík við í seinni leik liðanna í umspilinu. Leikurinn hefst á slaginu 16:15.






