Leik lokið!
Bara ein mínúta í uppbót og Skagamenn vinna þennan leik. Öruggur sigur hjá þeim, skýrsla og viðtöl væntanleg seinna í kvöld.
91. mín
Smá sárabót
Birkir Þorsteinsson (stoðsending: Þorleifur Úlfarsson)
Blikarnir sækja hratt og koma með fyrirgjöfina frá hægri. Þá er Birkir í fullt af plássi á fjær og stangar boltan inn.87. mín
InnBjartur Orri Jónsson
ÚtAnton Logi Lúðvíksson
84. mín
Kemur inn á með krafti
Ómar Björn fer strax í það að hlaupa upp kantinn, koma sér inn á teiginn og tekur skotið. Það fór hins vegar beint í Anton.
83. mín
InnÓmar Björn Stefánsson
ÚtSteinar Þorsteinsson
83. mín
InnRafael Máni Þrastarson
ÚtViktor Jónsson
78. mín
Mátti reyna!
Skagamenn koma boltanum upp hægri kantinn og svo kemur fyrirgjöfin. Viktor ákveður þá að henda bara í hjólhestinn, hann nær skotinu en það fer yfir.
71. mín
Góð tilraun!
Jónatan Guðni með skemmtilegan sprett frá vinstri kantinum og yfir á miðjan völlinn. Hann tekur svo skotið, en bara aðeins of hátt.
69. mín
Enginn í vörn
Markús Páll Ellertsson (stoðsending: Gísli Eyjólfsson)
Gísli tekur boltann niður með bringunni og leggur boltann á Markús þannig. Markús röltir síðan bara frekar rólega í átt að marki, sér að það er enginn að fara í hann þannig hann bara skýtur fyrir utan teig og hittir hann niður í hornið.65. mín
InnBirkir Þorsteinsson
ÚtKristinn Jónsson
65. mín
InnJónatan Guðni Arnarsson
ÚtDagur Örn Fjeldsted
65. mín
InnGuðmar Gauti Sævarsson
ÚtGísli Laxdal Unnarsson
65. mín
InnAron Kristinn Zumbergs
ÚtHaukur Andri Haraldsson
64. mín
Þarna átti Haukur að skjóta
Skagamenn sækja hratt og eru tveir komnir í gegn og bara markmaðurinn til varnar. Haukur er þá í algjöru dauðafæri en bíður eftir Viktoti svo hann geti lagt á hann. Skotið frá Viktori er svo ekki nógu gott.
62. mín
Gísli Laxdal með fastan bolta fyrir, Steinar er að koma á fullum hraða inn í teiginn og hann nær til boltans en ekki nægilega vel þannig hann 'slæsar' hann aftur fyrir.
60. mín
Flott spil hjá Blikum
Blikarnir að spila ágætlega saman í kringum teig Skagamanna. Viktor Karl tekur svo skotið en í varnarmann og svo afturfyrir.
58. mín
Gísli Laxdal í fínni stöðu en hittir boltann mjög illa þannig skotið hans langt framhjá.
57. mín
Flottir taktar
Steinar Þorsteins með danstakta fyrir utan teig, býr sér þannig til smá pláss og tekur svo fast skot á markið en Anton með mjög góða vörslu.
54. mín
Góð varsla!
Blikarnir sækja hratt og Höskuldur leggur boltann á Davíð sem er að bruna upp vinstri kantinn. Davíð fer svo inn á teig og reynir skotið, en Árni með góða vörslu til að stöðva þetta.
53. mín
InnGuðmundur Þórarinsson
ÚtStyrmir Jóhann Ellertsson
52. mín
Aftur skilja þeir besta skallamanninn eftir frían
Viktor Jónsson (stoðsending: Böðvar Böðvarsson)
Skagamenn með aukaspyrnu við vinstri hlið teigsins. Böðvar lyftir boltanum inn í teiginn á fjær og það er bara enginn að dekka Viktor. Hann stekkur upp og stangar hann í netið.49. mín
Gult spjald
Óli Valur Ómarsson
46. mín
Seinni hálfleikur er hafinn!
46. mín
InnViktor Karl Einarsson
ÚtHlynur Freyr Karlsson
Tvöföld í hálfleik hjá Ólafi Inga
46. mín
InnHöskuldur Gunnlaugsson
ÚtGabríel Snær Hallsson
45. mín
Hálfleikur
Skagamenn með tveggja marka forystu í hálfleik en það skilaði sér út af góðri pressu. Heilt yfir mjög rólegur leikur en Skagamenn náðu í þessi tvö færi og nýttu það vel.
45. mín
Skagamenn í færi
+1
Skagamenn með aukaspyrnu sem þeir lyfta inn í teiginn. Viktor er þá mættur á fjær en hittir ekki boltann nógu vel þannig að skotið verður laust og Anton grípur.
Skagamenn með aukaspyrnu sem þeir lyfta inn í teiginn. Viktor er þá mættur á fjær en hittir ekki boltann nógu vel þannig að skotið verður laust og Anton grípur.
45. mín
Ein mínúta í uppbótartíma
43. mín
Skagamenn tvöfalda forystuna!
Viktor Jónsson (stoðsending: Haukur Andri Haraldsson)
Góð pressa hjá Skagamönnum aftur og þeir vinna boltann ofarlega á vellinum. Haukur kemur þá með fyrirgjöfina inn í teiginn, og Blikarnir skilja Viktor eftir í of miklu plássi. Hann er þá í sinni uppáhaldsstöðu og stangar boltann í netið.40. mín
Aftur orðið rólegt
Þetta mark náði ekki alveg að setja spennuna í leikinn sem maður vonaðist eftir.
33. mín
Árni heppinn þarna
Blikar með langan bolta fram og Árni Marinó tekur alvöru skógarhlaup út úr markinu til að hreinsa boltann. Hann rétt nær smá snertingu og Dagur Örn nær að beygja sig frá fætinum á honum. Munaði litlu að hann hefði bara sparkað beint í Dag.
29. mín
Það einmitt líka gegn sínum gömlu félögum.
Klúður í öftustu línu
Gísli Eyjólfsson
Viktor Örn fulll rólegur með boltann og gefur hreinlega bara á Gísla sem er að koma í pressuna. Gísli er þá bara einn gegn markmanni, og hann röltir bara framhjá Antoni og skorar svo í opið markið.Það einmitt líka gegn sínum gömlu félögum.
27. mín
Markús með tvö skot
Flott þríhyrningaspil milli Markús og Gísla fyrir ÍA og Markús tekur svo fast skot en í varnarmann. Skagamenn halda samt boltanum, spila saman í kringum teiginn og koma honum aftur á Markús sem tekur þá skotið yfir markið.
21. mín
Dauðafæri!
Flott spil hjá Blikunum og þeir koma boltanum á Þorleif úti vinstra megin. Hann gefur boltann fastan fyrir á Anton Loga sem er alveg ódekkaður við vítapunktinn. Skotið hans hins vegar ekki nógu nákvæmt og það fer framhjá.
17. mín
Blikar í færi
Dagur Örn kemur með fyrirgjöfina frá hægri beint á kollinn á Þorleifi. Honum tekst bara ekki að beina skallanum niður, þannig þessi fer yfir.
15. mín
Gangur leiksins
Það er frekar rólegt yfir þessum leik hér í byrjun. Svona eins og við mátti búast, ekkert undir í þessum leik fyrir bæði lið.
7. mín
Dagur Örn keyrir á Böðvar, tekur svo eina snögga hreyfingu til hliðar áður en hann tekur skotið. Það fór hins vegar lengst yfir.
5. mín
Gabríel Snær með flottan snúning fyrir utan teig. Opnar svo líkamann og er kominn í frábært skotfæri. Þá ná Skagamenn hins vegar á síðustu stundu að pota boltann frá honum.
3. mín
Fyrsta færið
Gísli Eyjólfs með frábæran sprett upp miðjan völlinn, leggur svo boltann á Viktor þegar þeir komast að teignum. Viktor reynir skotið en í það fer í varnarmann og afturfyrir.
1. mín
Leikur hafinn
Gunnar flautar og við erum farin af stað!
Fyrir leik
Dómarabreyting
Jóhann Ingi verður á hliðarlínunni, hann hefur eitthvað meiðs í upphitun. Gunnar Freyr Róbertsson verður þá með flautuna í þessum leik.
Fyrir leik
Ekkert undir á skaganum, fínasta veður og menn eru væntanlega mættir til að spila fótbolta og skora mörk, Yfir 3,5 mörk á Epic er 1.78
— Kristalkúlan (@kristalkulan) September 20, 2026
Fyrir leik
Tvær Blikabreytingar
Ólafur Ingi Skúlason þjálfari Breiðabliks gerir tvær breytingar á sínu liði. Ívar Örn Árnason er ekki með í dag, og Jónatan Guðni Arnarson fær sér sæti á bekknum. Dagur Örn Fjeldsted og Viktor Örn Margeirsson koma inn fyrir þá.


Fyrir leik
Ein breyting hjá ÍA
Lárus Orri Sigurðsson þjálari ÍA gerir eina breytingu á sínu liði. Steinar Þorsteinsson kemur inn í liðið á meðan Jón Gísli Eyland Gíslason tekur út leikbann.


Fyrir leik
Rosalegur gærdagur
Það var rosalegur gærdagur í Bestu deildinni þar sem Víkingur innsiglaði meistaratitilinn á Meistaravöllum og KA fór illa með Þór. Fjallað var um leikina í Innkastinu og þá er einnig hægt að sjá það helsta úr þeim hér að neðan.
Fyrir leik
Dómarinn
Jóhann Ingi Jónsson verður með flautuna í dag en honum til aðstoðar verða Guðmundur Ingi Bjarnason og Kristofer Bergmann. Gunnar Freyr Róbertsson verður fjórði dómari og eftirlitsmaður Þórður Georg Lárusson.

Fyrir leik
Spáin
Hinrik Harðarson, leikmaður Egersund í Noregi, spáir í leikina sem framundan eru.
ÍA 2 - 2 Breiðablik
Mínir menn upp á Skaga hljóta ætla að klára mótið með sæmd, vera faglegir. Blikarnir komnir með þann stóra og allir ligeglad.
ÍA 2 - 2 Breiðablik
Mínir menn upp á Skaga hljóta ætla að klára mótið með sæmd, vera faglegir. Blikarnir komnir með þann stóra og allir ligeglad.
Fyrir leik
Þýðingalítill leikur
ÍA er í 5. sæti deildarinnar með 30 stig og Breiðablik einu sæti ofar með 33 stig. Það eru hins vegar alveg 12 stig upp í þriðja sætið og því ekki hægt að ná því. Aðeins efstu þrjú sætin gefa liði þátttökurétt í Evrópukeppni á næsta ári og því lítið fyrir þessi tvö lið að spila fyrir. Þau munu eitthvað berjast um að vera liðið sem fær fjórða sætið, en það er aðallega upp á stoltið.

Fyrir leik
Besta deildin heilsar!
Komið þið sæl og verið velkomin í beina textalýsingu frá leik ÍA og Breiðablik í 24. umferð Bestu deildar karla.
Leikurinn hefst klukkan 16:00 og verður spilaður á Elkem vellinum.
sunnudagur 20. september
Besta karla - Efri hluti
16:00 Keflavík-Fram (HS Orku völlurinn)
16:00 ÍA-Breiðablik (ELKEM völlurinn)
Besta karla - Neðri hluti
16:00 ÍBV-Valur (Hásteinsvöllur)
16:00 FH-Stjarnan (Kaplakrikavöllur)
Leikurinn hefst klukkan 16:00 og verður spilaður á Elkem vellinum.

sunnudagur 20. september
Besta karla - Efri hluti
16:00 Keflavík-Fram (HS Orku völlurinn)
16:00 ÍA-Breiðablik (ELKEM völlurinn)
Besta karla - Neðri hluti
16:00 ÍBV-Valur (Hásteinsvöllur)
16:00 FH-Stjarnan (Kaplakrikavöllur)







