Tindastóll fær finnskan miðjumann (Staðfest)
Tindastóll er búinn að krækja í miðjumann fyrir komandi átök í Bestu deild kvenna.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24424 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
Tindastóll er búinn að krækja í miðjumann fyrir komandi átök í Bestu deild kvenna.
Þýska félagið Eintracht Frankfurt er búið að virkja ákvæði í samningi Hugo Ekitike og hefur framherjinn efnilegi því verið keyptur til félagsins.
Berglind Björg Þorvaldsdóttir er gengin í raðir Vals og er komin með leikheimild fyrir leik liðsins gegn Þrótti í Bestu deildinni á morgun. Fótbolti.net greindi frá því fyrir rúmum tveimur vikum síðan að Berglind væri á leiðinni í Val frá franska stórliðinu PSG. Samningur hennar við PSG átti að renna út í sumar.
KR tilkynnti í dag að félagið hafi náð að fá félagaskipti fyrir sænska miðjumanninn Mouraz Neffati áður en félagaskiptaglugginn lokaði í gær. Neffati gerir lánssaamning við KR sem gildir fram í júní en möguleiki er að honum verði framlengt eftir þann tíma.
<p>KF hefur nælt í framherjan Jonas Schmalbach en hann er ítalskur og einnig með þýskan ríkisborgararétt.</p>
<p>Þær Jóhanna Melkorka Þórsdóttir og Þórdís Embla Sveinbjörnsdóttir skrifuðu undir lánssamning við Fram undir lok félagaskiptagluggans í gær.</p>
<p>Eiður Orri Ragnarsson er genginn til liðs við KFA en hann var seldur frá Njarðvík.</p>
Þorlákur Breki Baxter hefur verið lánaður í Selfoss frá Stjörnunni. Hann mun því spila að minnsta kosti fyrri hluta tímabilsins með Selfossi í 2. deild. Hann er nítján ára framherji sem skrifaði undir þriggja ára samning við Stjörnuna fyrir tímabilið. Hann var í byrjunarliði Stjörnunnar gegn Augnabliki í Mjólkurbikarnum í kvöld og skoraði fyrra mark liðsins. <i>„Boltinn dettur fyrir Þorlák í teignum og hamrar hann boltanum í samskeytin, almennileg afgreiðsla! Hans fyrsta mark fyrir Stjörnuna!"</I> skrifaði Kári Snorrason í textalýsingu frá leiknum.
Thelma Lóa Hermannsdóttir fékk í dag félagaskipti í FH frá Bandaríkjunum. Thelma er 24 ára sóknarmaður sem lék með háskólaliði Florida Atlantic á árunum 2018-2022. Hún lék síðast á Íslandi sumarið 2021 og skoraði þá tvö mörk í sjö leikjum með KR í Lengjudeildinni. Hún lék með Fylki á árunum 2016-19 og skipti svo í KR. Alls á hún að baki 90 KSÍ leiki og hefur í þeim skorað nítján mörk. Þá lék hún á sínum tíma sjö leiki fyrir yngri landsliðin.
Hákon Ingi Jónsson er mættur aftur í HK eftir sjö tímabil í burtu. Hann var þriðji markahæsti leikmaður 1. deildar árið 2016 þegar hann lék síðast með liðinu, skoraði þá 13 mörk í 22 leikjum. Hann kemur til HK frá Fjölni þar sem hann hefur verið undanfarin tvö tímabil. Samningur hans við Fjölni átti að renna út eftir tímabilið 2024. Hann kom inn á sem varamaður þegar Fjölnir lagði Selfoss í bikarnum í gær. Þegar Hákon gekk í raðir Fjölnis var hann orðaður við HK en valdi frekar að fara í Grafarvoginn. Þar skoraði hann átta mörk í fyrra og ellefu mörk þar áður.
Guðjón Pétur Lýðsson hefur fengið félagaskipti í Hauka frá Grindavík. Hann mun því spila í 2. deild í sumar. Guðjón er 36 ára miðjumaður sem uppalinn er í Haukum og lék með liðinu fyrst árið 2006 og svo aftur tímabilin 2009-10.
Þróttur Reykjavík hefur fengið hinn nítján ára gamla Dag Traustason á láni frá FH út tímabilið. Dagur mun því spila með Þrótti í Lengjudeildinni í sumar. Framherjinn var á láni hjá Grindavík fyrri hluta mótsins í fyrra og kom við sögu í átta leikjum í Lengjudeildinni.
Njarðvík hefur fengið Breka Þór Hermannsson frá ÍA að láni út tímabilið. Breki er 21 árs Grundfirðingur sem gekk í raðir ÍA fyrir tímabilið 2020. Á síðasta tímabili kom hann við sögu í sextán leikjum með ÍA í Lengjudeildinni og skoraði tvö mörk. Hann kom við sögu í fimm leikjum með ÍA í Bestu sumarið 2022. Í vetur kom hann svo við sögu í fjórum leikjum í Lengjubikarnum en var ekki í hópnum hjá ÍA í fyrstu þremur leikjunum í Bestu deildinni og er nú kominn með leikheimild með Njarðvík.
Alex Bergmann Arnarsson er genginn í raðir Gróttu og getur spilað með liðinu á morgun þegar liðið mætir Þór í Mjólkurbikarnum. Alex hefur æft með Gróttu að undanförnu og er búið að ganga frá félagaskiptunum.
<p>Hákon Dagur Matthíasson er farinn aftur heim í ÍR á láni frá Víkingum.</p>
FH hefur fengið Bjarna Guðjón Brynjólfsson á láni frá Val. Á sama tíma hefur Valur fengið Hörð Inga Gunnarsson á láni frá FH. Bjarni Guðjón er tvítugur miðjumaður sem Valur keypti af Þór síðasta sumar en kláraði tímabilið fyrir norðan. Hann kom inn á í meistarakeppni KSÍ en spilaði ekki í fyrstu þremur deildarleikjum Vals. Hann fer nú á láni til FH út tímabilið.
Fram er samkvæmt heimildum Fótbolta.net að ganga frá kaupum á Haraldi Einari Ásgrímssyni. Haraldur er samningsbundinn FH út tímabilið og þarf Fram því að kaupa hann. Fótbolti.net fjallaði um það fyrr í vikunni að Fram væri í viðræum við FH um kaup á bakverðinum. <b>Uppfært 18:26:</b> Félagaskiptin hafa verið staðfest!
Watford tilkynnti í dag að félagið væri búið að ráða Tom Cleverley sem aðalþjálfara liðsins til frambúðar. Cleverley var bráðabirgðasjóri eftir að Valerien Ismael var látinn fara í mars.
Vestri tilkynnti rétt í þessu að félagið hefði fengið Johannes Selvén á láni frá danska félaginu OB. Selvén er tvítugur Svíi, hægri kantmaður sem gekk í raðir OB frá Gautaborg síðasta sumar. Hann kom við sögu í níu leikjum og skoraði eitt mark fyrir OB fyrri hluta tímabilsins en hefur ekki verið í leikmannahópnum að undanförnu.
Tveir leikir eru búnir að skipta yfir í Hauka í 2. deild á gluggadeginum í dag. Um er að ræða leikmenn sem eru báðir uppaldir hjá félaginu, Hallur Húni Þorsteinsson og Óliver Steinar Guðmundsson.