Þrír á förum frá Man City - Dalot orðaður við Real Madrid - Framherji West Ham til Milan?
fimmtudagur 11. desember
Sambandsdeildin
fimmtudagur 27. nóvember
miðvikudagur 19. nóvember
Evrópubikarinn - 16-liða úrslit
sunnudagur 16. nóvember
Undankeppni HM
fimmtudagur 13. nóvember
Undankeppni EM U21
Undankeppni HM
miðvikudagur 12. nóvember
Evrópubikarinn - 16-liða úrslit
fimmtudagur 6. nóvember
Sambandsdeildin
miðvikudagur 29. október
Þjóðadeild kvenna - Umspil
sunnudagur 26. október
Besta-deild karla - Efri hluti
föstudagur 24. október
Þjóðadeild kvenna - Umspil
fimmtudagur 23. október
Sambandsdeildin
miðvikudagur 22. október
Evrópukeppni unglingaliða
mánudagur 20. október
Besta-deild karla - Efri hluti
miðvikudagur 15. október
Evrópubikar kvenna
þriðjudagur 14. október
Undankeppni EM U21
mánudagur 13. október
Undankeppni HM
laugardagur 11. október
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
Besta-deild kvenna - Efri hluti
föstudagur 10. október
Undankeppni HM
Undankeppni EM U21
fimmtudagur 9. október
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
miðvikudagur 8. október
Evrópubikar kvenna
mánudagur 6. október
Besta-deild kvenna - Efri hluti
sunnudagur 5. október
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
Besta-deild kvenna - Efri hluti
laugardagur 4. október
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
föstudagur 3. október
Besta-deild kvenna - Efri hluti
fimmtudagur 2. október
Sambandsdeildin
miðvikudagur 1. október
Besta-deild kvenna - Efri hluti
Evrópukeppni unglingaliða
þriðjudagur 30. september
Besta-deild kvenna - Efri hluti
mánudagur 29. september
Besta-deild karla - Efri hluti
sunnudagur 28. september
Besta-deild karla - Neðri hluti
laugardagur 27. september
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
Lengjudeild karla - Umspil
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
föstudagur 26. september
Fótbolti.net bikarinn
mánudagur 22. september
Besta-deild karla - Efri hluti
miðvikudagur 17. september
Lengjudeild karla - Umspil
mánudagur 15. september
Besta-deild karla
föstudagur 12. september
Besta-deild kvenna
sunnudagur 14. desember
Úrvalsdeildin
Brentford 1 - 1 Leeds
Crystal Palace 0 - 3 Man City
West Ham 2 - 3 Aston Villa
Sunderland 1 - 0 Newcastle
Nott. Forest 3 - 0 Tottenham
WSL - Women
West Ham W 2 - 2 Liverpool W
Manchester City W 6 - 1 Aston Villa W
Man Utd W 3 - 3 Tottenham W
Brighton W 0 - 3 Chelsea W
Leicester City W 1 - 0 London City Lionesses W
Division 1 - Women
Nantes W 3 - 0 Marseille W
Bundesligan
Werder 0 - 2 Stuttgart
Bayern 2 - 2 Mainz
Freiburg 1 - 1 Dortmund
Frauen
Koln W 0 - 1 Carl Zeiss Jena W
RB Leipzig W 2 - 3 Hoffenheim W
Bayern W 6 - 0 Hamburger W
Serie A
Udinese 1 - 0 Napoli
Fiorentina 1 - 2 Verona
Genoa 1 - 2 Inter
Milan 2 - 2 Sassuolo
Bologna - Juventus - 19:45
Serie A - Women
Genoa W 0 - 1 Sassuolo W
Lazio W 1 - 0 Parma W
La Liga
Sevilla 4 - 0 Oviedo
Ekkert mark hefur verið skorað
Celta 2 - 0 Athletic
Alaves - Real Madrid - 20:00
þri 02.jún 2020 13:45 Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Magazine image

Spá Fótbolta.net - 6. sæti: Stjarnan

Sérfræðingar Fótbolta.net spá því að Stjörnumenn endi í 6. sæti í Pepsi Max-deildinni í sumar. Álitsgjafar spá í deildina en þeir raða liðunum upp í röð og það lið sem er í efsta sæti fær 12 stig, annað sæti 11 og svo koll af kolli niður í tólfta sæti sem gefur eitt stig. Stjarnan endar í sjötta sæti ef spáin rætist.

Lykilmaðurinn Hilmar Árni Halldórsson.
Lykilmaðurinn Hilmar Árni Halldórsson.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sölvi Snær Guðbjargarson.
Sölvi Snær Guðbjargarson.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrirliðinn Alex Þór Hauksson.
Fyrirliðinn Alex Þór Hauksson.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Emil Atlason kom frá HK.
Emil Atlason kom frá HK.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Daníel Laxdal.
Daníel Laxdal.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jósef Kristinn Jósefsson.
Jósef Kristinn Jósefsson.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Spáin:
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. ?
6. Stjarnan 81 stig
7. KA 55 stig
8. Fylkir 49 stig
9. ÍA 44 stig
10. HK 43 stig
11. Grótta 20 stig
12. Fjölnir 14 stig

Um liðið: Stjarnan endaði í fjórða sæti Pepsi Max-deildarinnar í fyrra og missti af Evrópusæti. Vonbrigðatímabil hjá Garðbæingum sem setja alltaf stefnuna á að komast út í heim.

Þjálfarar - Ólafur Jóhannesson og Rúnar Páll Sigmundsson: Margar hökur fóru í gólf þegar Óli Jó var kynntur sem þjálfari Stjörnunnar við hlið Rúnars Páls. Ein allra stærsta fréttin í vetur. Þarna sameinast tveir þjálfarar sem þekkja það að vinna titla og gríðarlega spennandi að sjá hvernig þessi blanda skilar sér út á völlinn. Mikil umræða hefur verið í gangi um það hver muni eiga lokaorðið.

Styrkleikar: Mikil reynsla hjá leikmönnum og í starfsliði. Það hafa ekki verið miklar hræringar innan hópsins undanfarin ár og allir eru með rútínuna og hlutverkið á hreinu. Svo er það Hilmar Árni Halldórsson. Leikmaður sem er alltaf líklegur til að leggja upp eða skora. Gerir oft algjöran gæfumun í jöfnum leikjum.

Veikleikar: Mega ekki við miklum skakkaföllum. Talsverður gæðamunur milli manna frá byrjunarliðinu og niður ef 2-3 leikmenn eru fjarri góðu gamni. Mikið hefur verið talað um að það vanti nýja og ferska 'söguhetju' í Garðabæjarliðið. Þá vantar mögulega annan afgerandi mann á miðsvæðið.

Lykilmenn: Haraldur Björnsson og Hilmar Árni Halldórsson. Þegar Halli Björns er í gírnum og í góðu standi eru fáir markverðir í deildinni betri. Stjarnan þarf á því að halda að hann eigi gott tímabil. Allir vita hvað Hilmar Árni getur gert. Skapar mörg og marktækifæri á færibandi með mögnuðum spyrnum sínum og frábærum leikskilningi.

Gaman að fylgjast með: Alex Þór Hauksson er mættur með fyrirliðabandið. Þessi yngsti fyrirliði deildarinnar er ákaflega öflugur miðjumaður og hefur svo sannarlega sýnt gæði sín með Stjörnunni og íslenska U21-landsliðinu. Sölvi Snær Guðbjargarson er svo feykilega skemmtilegur sóknarleikmaður og ef hann tekur næsta skref í sumar gæti hann sprungið algjörlega út.

Spurningarnar:Getur Stjarnan blandað sér í titilbaráttu? Hvernig kemur handbragð Óla Jó út í Garðabænum? Hversu mörg mörk mun Hilmar Árni búa til?

Völlurinn: Samsung völlurinn. Það er yfirleitt betra að klæða sig aðeins betur áður en farið er í stúkuna í Garðabænum, 'frystikistuna', því sólin hefur sennilega aldrei skinið í stúkuna. Vonandi verður Vængjavagninn á öllum heimaleikjum því þá ertu með besta vallarmat landsins.

Fyrirliðinn segir - Alex Þór Hauksson
„Okkur er oft spáð í kringum þetta sæti og þessi spá kemur ekkert á óvart en ég get alveg sagt þér það að við erum ekki að stefna á sjötta sætið. Deildin mun ekki spilast eftir spánni heldur því sem gerist inni á vellinum og við ætlum að gera mun betur en þetta. Við höfum getað tekið fullt af jákvæðum hlutum úr þessum æfingaleikjum sem við höfum verið að taka. Þetta snýst allt um að vera klárir í fyrsta leik og það hefur verið gott að mæta tveimur hörkuliðum. Það er mikill spenningur og verður gaman þegar þetta fer loksins af stað."

Komnir:
Björn Berg Bryde frá HK (Var á láni)
Emil Atlason frá HK
Halldór Orri Björnsson frá FH
Vignir Jóhannesson frá FH

Farnir:
Ásgeir Þór Magnússon í Leikni R.
Baldur Sigurðsson í FH
Guðjón Orri Sigurjónsson í KR
Guðmundur Steinn Hafsteinsson til Rot-Weiss Koblen
Nimo Gribenco til AGF (Var á láni)

Fyrstu fimm leikir Stjörnunnar:
15. júní Stjarnan - Fylkir
21. júní Fjölnir - Stjarnan
28. júní Stjarnan - KA
5. júlí FH - Stjarnan
9. júlí Stjarnan - KR

Sjá einnig:
Hin hliðin - Sölvi Snær Guðbjargarson

Leikmenn Stjörnunnar sumarið 2020:
Haraldur Björnsson - 1
Brynjar Gauti Guðjónsson - 2
Jósef Kristinn Jósefsson - 3
Jóhann Laxdal - 4
Þorri Geir Rúnarsson - 6
Guðjón Baldvinsson - 7
Halldór Orri Björnsson - 8
Daníel Laxdal - 9
Hilmar Árni Halldórsson - 10
Þorsteinn Már Ragnarsson - 11
Heiðar Ægisson - 12
Þórarinn Ingi Valdimarsson - 15
Ævar Ingi Jóhannesson - 16
Kristófer Konráðsson - 17
Sölvi Snær Guðbjargarson - 18
Martin Rauschenberg - 19
Eyjólfur Héðinsson - 20
Elís Rafn Björnsson - 21
Emil Atlason - 22
Vignir Jóhannesson - 23
Björn Berg Bryde - 24
Ísak Andri Sigurgeirsson - 27
Óli Valur Ómarsson - 28
Alex Þór Hauksson - 29
Tristan Freyr Ingólfsson - 32
Viktor Reynir Oddgeirsson - 33

Spámennirnir: Arnar Daði Arnarsson, Benedikt Bóas Hinriksson, Elvar Geir Magnússon, Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson, Gunnar Birgsson, Hafliði Breiðfjörð, Ingólfur Sigurðsson, Magnús Már Einarsson, Sverrir Einarsson, Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke, Tómas Þór Þórðarson
Athugasemdir
banner