Það er Steypustöðin sem færir þér úrvalslið hverrar umferðar í Bestu deild kvenna. Núna er komið að úrvalsliði sjöundu umferðar.
Stjarnan og Breiðablik eiga flesta fulltrúa í liðinu eftir flotta sigra í umferðinni.
Katrín Ásbjörnsdóttir var valin maður leiksins í sigri Stjörnunnar gegn Þrótti og þar voru Anna María Baldursdóttir og Málfríður Erna Sigurðardóttir mjög góðar varnarlega.
Kristján Guðmundsson er þjálfari úrvalsliðsins í kjölfarið á þessum glæsilega sigri gegn Þrótti.
Breiðablik vann 6-1 sigur gegn Aftureldingu þar sem Birta Georgsdóttir átti sannkallaðan stórleik. Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir og Natasha Moraa Anasi voru einnig mjög öflugar.
Tiffany McCarty og Sandra María Jessen voru bestar í sigri Þórs/KA gegn Keflavík og á Selfossi voru Miranda Nild og Sif Atladóttir mjög góðar í sigri gegn KR.
Þá var Guðný Geirsdóttir frábær í markinu hjá ÍBv í jafntefli gegn toppliði Vals.
Það eru þrjár í þessu liði sem eru í þriðja sinn í liði umferðarinnar í sumar.
Það er spilað hratt í mótinu þessa stundina. Áttunda umferðin hefst í kvöld og klárast á morgun.
mánudagur 6. júní
14:00 Stjarnan-Þór/KA (Samsungvöllurinn)
þriðjudagur 7. júní
18:00 ÍBV-Keflavík (Hásteinsvöllur)
19:15 KR-Þróttur R. (Meistaravellir)
19:15 Breiðablik-Selfoss (Kópavogsvöllur)
20:15 Valur-Afturelding (Origo völlurinn)
Sjá einnig:
Sterkasta lið 1. umferðar
Sterkasta lið 2. umferðar
Sterkasta lið 3. umferðar
Sterkasta lið 4. umferðar
Sterkasta lið 5. umferðar
Sterkasta lið 6. umferðar
Athugasemdir