Manchester United ætlar óvænt að reyna að fá enska vinstri bakvörðinn Myles Lewis-Skelly frá Arsenal
   mán 23. mars 2026 14:50
Kári Snorrason
Ben White snýr aftur í landsliðið eftir þriggja ára fjarveru
Ben White.
Ben White.
Mynd: EPA
Ben White, varnarmaður Arsenal, hefur verið kallaður aftur í enska landsliðshópinn í fyrsta sinn í rúm þrjú ár.

Hann hefur ekki verið valinn síðan að hann yfirgaf hópinn á HM í Katar árið 2022 vegna persónulegra ástæðna. Í kjölfarið gaf hann ekki kost á sér á meðan Gareth Southgate var landsliðsþjálfari.

White kemur inn í 35 manna hóp Thomas Tuchel í stað Jarell Quansah sem er meiddur. England mætir Úrúgvæ 27. mars og Japan 31. mars í æfingaleikjum á Wembley.

Trent Alexander-Arnold var ekki valinn í hópinn í fjórða glugganum í röð en hann skrifaði færslu á Instagram fyrir helgi þar sem hann sagði einfaldlega; Madríd, og ekkert annað. Enskir fjölmiðlar keppast nú um að lesa úr skilaboðunum.
Athugasemdir
banner
banner