Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   fös 14. ágúst 2020 16:20
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Nikola Dejan Djuric spáir í 11. umferð Lengjudeildarinnar
Lengjudeildin
Nikola í leik með Haukum.
Nikola í leik með Haukum.
Mynd: Hulda Margrét
Eyþór Aron Wöhler.
Eyþór Aron Wöhler.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Íslenski boltinn fer aftur af stað í kvöld eftir rúmlega tveggja vikna hlé vegna kórónuveirufaraldursins. Það eru átta umferðir búnar af Lengjudeild karla en í kvöld hefst 11. umferðin þar sem tveimur umferðum var frestað.

Sveindís Jane Jónsdóttir fékk þrjá rétta þegar hún spáði í áttundu umferðina. Nikola Dejan Djuric, sem hefur frábær með liði Hauka í 2. deild karla, spáir í 11. umferðina.

Fram 1 - 3 ÍBV (18 í kvöld)
Minn maður Gary Martin fær sér sushi fyrir leik og hendir í þrennu. Unnar Steinn minnkar muninn í lokin eftir hornspyrnu frá Alberti Hafsteins.

Afturelding 1 - 0 Vestri (13:45 á morgun)
Eyþór Wöhler kemur inn á þegar tíu mínútur eru eftir og setur winner á 93. mínútur. Hann fagnar með því að rífa sig úr að ofan fyrir framan enga áhorfendur.

Leiknir F. 1 - 1 Grindavík (14 á morgun)
Þetta verður hörkuleikur sem endar með jafntefli. Sjötta jafntefli Grindavíkur staðreynd.

Leiknir R. 2 - 0 Þór (16 á morgun)
Þægilegur sigur heimamanna í Breiðholti. Captain Sævar Atli setur tvennu.

Magni 1 - 1 Keflavík (16 á morgun)
Keflavík mun sakna Adam Páls í þessum leik og þetta endar í óvæntu jafntefli.

Víkingur Ó. 2 - 0 Þróttur R. (18 á morgun)
Gonzalo klárar þetta með tveimur aukaspyrnumörkum. Þróttarar hafa ekki skorað á útivelli í deildinni og það breytist ekki í þessum leik.

Fyrri spámenn:
Pétur Theódór Árnason (5 réttir)
Jón Arnar Barðdal (3 réttir)
Sveindís Jane Jónsdóttir (3 réttir)
Anna Björk Kristjánsóttir (2 réttir)
Hörður Ingi Gunnarsson (2 réttir)
Lucas Arnold (2 réttir)
Óskar Smári Haraldsson (2 réttir)
Hrafnkell Freyr Ágústsson (1 réttur)
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner