Fotbolti.net
15.11.26 - 19:30
Ívan Guðjón Baldursson

Lúlli: Fáum að sjá öðruvísi grískt lið

Lúlli: Fáum að sjá öðruvísi grískt lið
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Lúðvík Gunnarsson, þjálfari U21 landsliðs karla, svaraði spurningum fyrir gríðarlega mikilvægan umspilsleik við Grikkland um sæti á EM sem verður haldið í Albaníu og Serbíu næsta sumar.
U21: Hræðilegt víti og sjálfsmark í svekkjandi jafntefli
TENGT EFNI

U21: Hræðilegt víti og sjálfsmark í svekkjandi jafntefli

Lestu um leikinn: Ísland U21 1 - 1 Grikkland U21
Ísland gerði 1-1 jafntefli í fyrri leiknum gegn Grikklandi á heimavelli þrátt fyrir að hafa verið sterkari aðilinn í leik sem fór fram við erfiðar veðuraðstæður.

„Staðan á hópnum er góð, allir eru ferskir og klárir í slaginn. Ég held að þessi leikur muni gefa betri mynd af því hvernig við undirbjuggum okkur fyrir þann leik (á Íslandi), af því að eins og þú segir voru mjög sérstakar aðstæður í þeim leik," segir Lúlli.

„Ég held að við fáum að sjá öðruvísi grískt lið heldur en í fyrri leiknum. Þeir eru náttúrulega á heimavelli, með fólkið sitt á bak við sig, og ég held að þetta verði bara stál í stál. Við erum vel undirbúnir og vitum hvað við erum að fara að eiga við. Þetta verður spennandi leikur."

Grikkland tekur á móti Íslandi á morgun klukkan 17:00.

Lúlli: Fáum að sjá öðruvísi grískt lið
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.