Matti himinlifandi: Á þeim stað að mér er alveg sama hvernig markið lítur út
„Ég er ótrúlega ánægður," sagði Matthías Guðmundsson, þjálfari Vals, eftir dramatískan sigur á Þór/KA í kvöld.
„Mér fannst bæði lið vera ofan á á vissum köflum í báðum hálfleikum. Við fórum yfir að við vildum ná fleiri fyrsta og annan bolta í seinni hálfleik og vinna fleiri návígi. Svo á maður eftir að fara yfir gögnin og sjá hvort það tókst, það var upplifunin að það tókst."