Fotbolti.net
21.08.26 - 21:32
Sigurjón Árni Torfason

Nenad: Persónulega vil ég yfirgefa félagið á góðum tímapunkti

Auglýsing
Nenand var eðlilega svekktur eftir leik.

Nenand var eðlilega svekktur eftir leik.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Lengjudeildin
Ægir tóku á móti aftur Aftureldingu í 20. umferð Lengjudeildar karla á Geo-Salmo vellinum í Þorlákshöfn í dag. Leiknum lauk með 7-0 sigri gestanna í Aftureldingu. Fótbolti.net voru að sjálfsögðu mættir til Þorlákshafnar og var spjallað við Nenad eftir leik.
Lestu um leikinn: Ægir 0 - 7 Afturelding

„Mér getur auðvitað ekki liðið vel eftir þetta. Þetta var erfiður leikur og hann kom á mjög slæmum tímapunkti fyrir okkur. Við ákváðum, eða ég ákvað, að leikplanið væri að verjast, vera mjög skipulagðir og þéttir og liggja aftarlega." sagði þjálfarinn svekktur eftir leik.

„Það gekk mjög vel þar til fyrsta markið kom en eftir það fannst mér baráttuandinn fara úr liðinu. Við höfðum ekki skapað mikið fram að því og svo um 30. mínútu fá þeir víti. Þá varð staðan 2-0, síðan kom þriðja markið og það fjórða eftir mjög, mjög stór mistök. Við sköpuðum einfaldlega ekki mikið í leiknum og náðum ekki að halda boltanum nægilega vel. Við fengum í raun bara eitt gott færi sem við náðum að skapa.“

Afturelding leiddi 2-0 í hálfleik, en skoruðu fimm mörk í þeim síðari þar sem allt virðist hafa hrunið hjá Ægi. En gáfust menn upp?

„Það er mjög erfitt að segja, en mögulega fengu leikmennirnir þá tilfinningu eftir að staðan varð 2-0 að þeir gætu ekki snúið leiknum við. Svo kom þriðja markið mjög fljótt og fjórða og fimmta markið komu eftir mistök. Eftir það gáfust þeir eiginlega bara upp. Það var mjög augljóst að baráttuandinn var mun meiri í fyrri hálfleik en í þeim seinni.“

Nenad hefur gert góða hluti síðan hann tók við Ægi. Spurningin er hovrt að þetta sé hans síðasta tímabil sem þjálfari liðsins?


„Persónulega vil ég yfirgefa félagið á góðum tímapunkti. Ég vil ekki fara eftir svona vonbrigði. Þetta eru auðvitað ákveðin mistök og misheppnað tímabil. Við féllum fyrir nokkrum umferðum og höfum ekki litið vel út en það er mjög erfitt þegar maður er að vinna með mjög takmarkað fjármagn. Fjárhagsramminn okkar var einfaldlega ekki nægilega stór fyrir þetta getustig. Sum önnur félög gátu bætt við sig leikmönnum í félagaskiptagluggunum en við höfðum ekki þann möguleika." 

En var þá einhverntímann raunverulegur möguleiki að halda sér uppi?

„Fyrir tímabilið vildum við líka fá inn fleiri leikmenn og vorum með ákveðna leikmenn í huga, en þeir völdu frekar önnur félög í Lengjudeildinni. Við vorum því ekki nógu samkeppnishæfir fjárhagslega og kannski höfðu leikmenn heldur ekki nægan áhuga á verkefninu hjá okkur. Sumir þeirra kusu því frekar að fara til félaga sem hafa meiri sögu og reynslu á þessu getustigi.“ sagði Nena að lokum. 

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.