21.08.26 - 20:57
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Matti himinlifandi: Á þeim stað að mér er alveg sama hvernig markið lítur út
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Ég er ótrúlega ánægður," sagði Matthías Guðmundsson, þjálfari Vals, eftir dramatískan sigur á Þór/KA í kvöld.
„Mér fannst bæði lið vera ofan á á vissum köflum í báðum hálfleikum. Við fórum yfir að við vildum ná fleiri fyrsta og annan bolta í seinni hálfleik og vinna fleiri návígi. Svo á maður eftir að fara yfir gögnin og sjá hvort það tókst, það var upplifunin að það tókst."

Lestu um leikinn: Þór/KA 0 - 1 Valur
Lillý Rut Hlynsdóttir skoraði eina mark leiksins á 90. mínútu eftir hornspyrnu.
„Það var stórkostlegt. Ég er á þeim stað að mér er alveg sama hvernig markið lítur út. Ég fagnaði þvi alveg þvílíkt, þetta var geðveikt," sagði Matti.
Valur komst upp úr fallsæti með þessum sigri.
„Þetta verður spenna. Mörg lið í pakka sem verður gaman að takast á við. Við verðum að halda áfram á þessari braut þá eru okkur allir vegir færir."