Fotbolti.net
21.08.26 - 20:50
Snæbjört Pálsdóttir

Telma Ívars varði víti frá vinkonunni: Ég bjóst við að hún færi þangað

Auglýsing
Telma Ívars var hetja Víkings í Kaplakrika þegar hún hélt hreinu og varði vítaspyrnu frá Ásdísi Karen í 0-1 sigri gegn FH.

Telma Ívars var hetja Víkings í Kaplakrika þegar hún hélt hreinu og varði vítaspyrnu frá Ásdísi Karen í 0-1 sigri gegn FH.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn

Víkingur vann gríðarlega sterkan 0-1 sigur á FH í Kaplakrika í kvöld. Telma Ívars átti stórleik í marki Víkings, hélt hreinu og varði meðal annars vítaspyrnu frá Ásdísi Karen á lokamínútum leiksins. 

Lestu um leikinn: FH 0 - 1 Víkingur R.

„Bara geggjaðar,“ sagði Telma aðspurð um fyrstu tilfinningar eftir leik.

„Ég er ótrúlega stolt af stelpunum, hvernig við vorum í dag og hvernig við komum til leiks. Við lögðum okkur allar í þetta og sýndum það á vellinum í dag. Ég er gríðarlega ánægð með stelpurnar og tilfinningin er mjög góð.“

Stóra augnablik leiksins kom þegar FH fékk vítaspyrnu. Ásdís Karen fór á punktinn en Telma sá við henni.

„Ég segi það nú ekki að ég hafi verið búin að lesa hana alveg, en ég er örugglega búin að þekkja Ásdísi í 14 ár eða eitthvað. Við erum mjög góðar vinkonur.“

„Ég bjóst við að hún myndi fara hægra megin við mig, þannig að ég ákvað bara að giska á það horn og sem betur fer var það rétt í dag.“

FH hefur verið eitt besta sóknarlið deildarinnar í sumar og Telma hafði nóg að gera í markinu. Hún segir þó að Víkingar hafi mætt inn í leikinn með rétta hugarfarið.

„Þetta var gríðarlega mikilvægur leikur og við höfðum engu að tapa hérna í dag. Fólk hafði kannski ekki mikla trú á því að við myndum vinna hér í dag.“

„FH er búið að vera hrikalega gott í allt sumar og er, ef ég veit rétt, í öðru sæti. Það var engin pressa á okkur í dag.“

„Mér fannst við sýna það í heild. Við vorum allar að verjast og allar að fórna okkur fyrir hver aðra. Mér fannst við gríðarlega flottar hérna í dag og vorum að berjast fyrir hver aðra.“

„Það er búin að vera smá brekka hjá okkur og við höfum fengið allt of mikið af mörkum á okkur í sumar. En mér fannst við sýna það hérna í dag að við erum ekki nærri því hættar og við ætlum ekkert að gefast upp núna. Það er nóg eftir.“

Telma hefur talað um að hana langi aftur út í atvinnumennsku og var spurð hvort svona leikur væri ekki góður til að sýna sig.

„Jú, hann er það alveg. En ég vil nú bara að allir leikirnir mínir séu jafn góðir og að ég sýni jafngóða frammistöðu það sem eftir er af tímabilinu.“

„Ég er samningsbundin Víkingi, þau keyptu mig til 2029, þannig að ég er bara að bíða og sjá. Þótt mig langi að fara út þá þarf margt að gerast.“

Telma telur að sigurinn geti haft mikil áhrif á framhaldið hjá Víkingi.

„Ég held að þessi leikur eigi eftir að gefa okkur mjög mikið upp á framhaldið að gera. Ég trúi því að liðið muni mæta brjálað í hvern einasta leik það sem eftir er af tímabilinu.“

„Þessi sigur er að fara að gefa okkur svo mikið fyrir liðsheildina, klefastemninguna og æfingarnar það sem eftir er af tímabilinu.“

Sjáðu viðtalið í heild í spilaranum hér að ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.