21.08.26 - 21:14
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Alli Jói: Þetta gerist þegar maður nær ekki að troða boltanum yfir línuna
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þór/KA tapaði gegn Val í kvöld. Fótbolti.net ræddi við Aðalstein Jóhann Friðriksson, þjálfara Þórs/KA, eftir leikinn.
„Mikið svekkelsi. Við áttum að vera búnar að skora og koma okkur í forystu. Þetta gerist stundum þegar maður nær ekki að troða boltanum yfir línuna þá kemur þetta í bakið og það er það sem gerðist í dag," sagði Alli Jói.
„Við vorum nokkuð sprækar í að búa eitthvað til en ólíkt því úr síðasta leik þar sem við kláruðum það sem við fengum. Við verðum að taka þetta súra bragð með okkur áfram í næsta leik. Sá leikur er mikilvægur."
Þór/KA heimsækir Þrótt í næstu umferð. Þróttur er með þremur stigum meira í 6. sæti eftir sigur á ÍBV í kvöld en liðin eru með sömu markatölu.
„Það er þrusuerfiður leikur. Mér skilst að úrslitin hafi ekki verið okkur hliðholl. Það er ekki spurning um það, það er spurning um hvað við gerum í hverjum einasta leik sem við mætum til leiks. Ef við náum í okkar úrslit þurfum við ekki að spá í neinu nema okkur sjálfum. Það er það sem við þurfum að gera."
„Allir sem eiga séns á að vera þar ætla sér að vera þar. Við erum klárlega lið sem ætlum að reyna með mesta megni að komast þangað,"