Innkastið gerir upp landsleikjagluggann hjá Íslandi og skoðar hvaða leiki verða um næstu helgi í Bestu deildinni. Elvar Geir, Valur Gunnars og Valur Páll Eiríksson í hljóðveri. Íslandi mistókst að vinna Eistland en er samt á toppi riðilsins, U21 landsliðið komst í umspil með frábærum lokakafla í riðli sínum og Besta deildin hefst loks að nýju eftir endalausan landsleikjaglugga.
„Við erum svekktir með að hafa ekki unnið leikinn,“ sagði Ísak Bergmann Jóhannesson eftir 0-0 jafntefli gegn Eistlandi í Tallinn í dag.
„Svekktir en því meira sem maður horfir á þetta, við erum efstir í riðlinum og töpuðum ekki leik þannig að með gluggann getum við verið sáttir en með leikinn í dag kannski svekkelsi með að ná ekki einu marki inn,“ sagði Orri Steinn Óskarsson eftir 0-0 jafntefli gegn Eistlandi í Tallinn í kvöld.
„Svekkelsi númer eitt, tvö og þrjú myndi ég segja,“ sagði Stefán Teitur Þórðarson eftir 0-0 jafntefli gegn Eistlandi í Tallinn í kvöld.
„Ágætt, ætluðum okkur að vinna leikinn. Gátum það ekki og þá er fínt að hafa náð jafntefli,“ sagði Hákon Rafn Valdimarsson eftir 0-0 jafntefli gegn Eistlandi í Tallinn í kvöld.
„Auðvitað bæði svekkjandi að ná ekki að vinna leikinn en ég held að heilt yfir örugglega sanngjörn úrslit,“ sagði Gylfi Þór Sigurðsson eftir 0-0 jafntefli gegn Eistlandi í Tallinn í kvöld.
„Bara mjög ánægður með stigið,“ sagði Arnar Gunnlaugsson eftir 0-0 jafntefli gegn Eistlandi í Tallinn í kvöld.
Valur og Víkingur féllu úr Bestu deild kvenna síðasta föstudag eftir rosalega lokaumferð í neðri hluta deildarinnar. Báðum liðum var spáð talsvert betra gengi en sumarið var virkilega erfitt. Í efri hlutanum var líklega leikur ársins spilaður í dag þegar Þróttur heimsótti Breiðablik. Það er vonin að við fáum úrslitaleik í lokaumferðinni. Guðmundur Aðalsteinn og Arnar Páll Garðarsson fóru yfir þetta allt saman.
„Ég er bara búinn á því“, sagði Ian Jeffs, þjálfari Breiðabliks, eftir ótrúlegan endurkomusigur gegn Þrótti í Bestu deild kvenna í dag.
„Það er ekkert sérstakt að tapa, mér finnst það aldrei gott. Mér líður ekkert vel með það,“ sagði Jóhann Kristinn Gunnarsson, þjálfari Þróttar, eftir 5-4 tap gegn Breiðabliki.
„Mér líður ekkert eðlilega vel,“ sagði Hrafnhildur Ása, sem setti þrennu, eftir magnaðan endurkomusigur gegn Þrótti í Bestu deild kvenna í dag.
Gylfi Þór Sigurðsson var að vonum ánægður eftir 3-0 sigur Íslands á Búlgaríu í dag. Gylfi Þór er vanur að taka víti en Orri Steinn Óskarsson tók vítaspyrnu til að reyna skora þrennuna en klikkaði.