Hákon Rafn: Það verður bara að koma í ljós hvernig þjálfarinn velur í liðið

Hákon Rafn hefur fengið verðskuldað lof fyrir sína frammistöðu í glugganum

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Hákon Rafn hefur fengið verðskuldað lof fyrir sína frammistöðu í glugganum

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

„Ágætt, ætluðum okkur að vinna leikinn. Gátum það ekki og þá er fínt að hafa náð jafntefli,“ sagði Hákon Rafn Valdimarsson eftir 0-0 jafntefli gegn Eistlandi í Tallinn í kvöld.
Frammistaða íslenska liðsins var ekki sú besta sem maður hefur séð en Hákon stóð vaktina vel í markinu og varði vel á köflum og hlýtur að vera sáttur með eigin frammistöðu í leiknum:
„Já, já. Ánægður með mitt þannig séð en þetta var erfitt í dag, erfiður völlur og svekkjandi að hafa ekki náð að vinna en það er bara eins og það er.“
Hákon stóð nokkuð óvænt á milli stanganna í þessum glugga eftir að Elías Rafn Ólafsson þurfti að draga sig úr hópnum vegna meiðsla. Hákon hefur líklega verið besti maður liðsins, heilt yfir, í leikjunum fjórum en hvernig metur hann sína frammistöðu sjálfur?
„Já bara ánægður með mína frammistöðu í þessum glugga og bara gaman að geta sýnt það og ánægður bara heilt yfir með gluggann. Auðvitað hefði ég viljað vinna alla þessa leiki en við töpuðum allavega ekki og erum í 1. sæti og það eru tveir skemmtilegir leikir framundan í nóvember“
Aðspurður hvort hann vonist eftir því að halda sínu sæti í liðinu þegar Elías snýr aftur segir hann:
„Já, já, auðvitað vil ég spila og það verður bara að koma í ljós hvernig þjálfarinn velur í liðið.“
Viðtalið við Hákon má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
