Fotbolti.net
06.10.26 - 22:42
Elíza Gígja Ómarsdóttir

Stefán Teitur: Það er erfitt að taka hvaða miðjumann sem er og setja hann sem hafsent

Auglýsing
Stefán Teitur spilaði nýja stöðu í glugganum

Stefán Teitur spilaði nýja stöðu í glugganum

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip

„Svekkelsi númer eitt, tvö og þrjú myndi ég segja,“ sagði Stefán Teitur Þórðarson eftir 0-0 jafntefli gegn Eistlandi í Tallinn í kvöld.

Lestu um leikinn: Eistland 0 - 0 Ísland

„Við gáfum þeim leikinn í fyrri hálfleik þeir tóku okkur á seinni boltum og það var meira kveikt á þeim. Þeir sköpuðu sér nokkur færi út frá því. Mér fannst við koma betur út í seinni hálfleik, þrátt fyrir að það hafi verið betra þá var það ekki nægilega gott. Við virðum þetta stig, sitjum ennþá efstir og erum með þetta í okkar höndum þannig það er bara flott,“ hélt hann svo áfram.

Stefán spilaði stöðu miðvarðar í þessum glugga sem miðjumaður að upplagi og aðspurður hvernig honum hafi liðið með að spila þá stöðu segir hann:

„Mér leið bara rosalega vel. Ég held að ég sé bara nokkuð sáttur og stoltur af minni frammistöðu sem hafsent. Það er erfitt að taka hvaða miðjumann sem er og setja hann sem hafsent þannig að mér fannst ég sýna mína fótboltagreind að spila þessa stöðu. Ég er bara nokkuð sáttur, eins og þú segir, höldum þrisvar hreinu, tvisvar þegar ég byrjaði og svo 1-1 í hinum, bara nokkuð sáttur.“

Er Stefán kominn til að vera í hjarta varnarinnar í landsliðinu?

„Þú verður að spyrja Arnar að því en ég mun alltaf setja hag liðsins númer eitt, tvö og þrjú og ég mun spila hafsent ef hann vill að ég spili hafsent.“

Viðtalið við Stefán má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan. 

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.