Fotbolti.net
06.10.26 - 22:10
Elíza Gígja Ómarsdóttir

Arnar Gunnlaugs: Ég held að þessi gluggi sé ekki kominn til að vera

Auglýsing
Arnar Gunnlaugsson ætlar að virða stigið

Arnar Gunnlaugsson ætlar að virða stigið

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip

„Bara mjög ánægður með stigið,“ sagði Arnar Gunnlaugsson eftir 0-0 jafntefli gegn Eistlandi í Tallinn í kvöld. 

Lestu um leikinn: Eistland 0 - 0 Ísland

„Þetta var virkilega erfitt kvöld fyrir okkur. Eistarnir voru beinskeyttir og ég fílaði liðið þeirra. Þeir voru mjög ‘direct’ og voru að valda okkur miklum vandræðum, sérstaklega í fyrri hálfleik. Við náðum engum takti í pressuna okkar og héldum illa í bolta og vorum að gefa óþarfa langar sendingar án þess að vera í neinni stöðu til að vinna seinni bolta. Mér fannst seinni hálfleikur skömminni skárri, við náðum betri stjórn á okkar aðgerðum, pressan var betri. Ég fann alveg að þeir voru orðnir þreyttir þegar leið á leikinn en okkur vantaði samt svona smá síðasta boltann, síðasta sending, nákvæmni í fyrirgjöfum og svo framvegis, og svo framvegis. Ég er búinn að vera lengi í þessum bransa, ég bara virði stigið og sáttur við hvernig við náum að bregðast við í seinni hálfeik,“ hélt hann svo áfram.

Hákon Rafn er búinn að fá mikið lof fyrir sína frammistöðu í glugganum en hann hélt uppteknum hætti í dag og spilaði mjög vel. Aðspurður hvort það verði ekki erfitt að taka hann úr markinu þegar Elías Rafn Ólafsson snýr aftur eftir meiðsli segir hann:

„Já heldur betur. Hann getur ekki gert betur en þetta. Fjórir leikir og fá á sig eitt mark og eiga nokkrar stórar vörslur. Hann getur verið mjög ánægður með sjálfan sig í þessum glugga.“

Þetta er í fyrsta skiptið sem þessi langi októbergluggi er spilaður en liðið lék fjóra leiki í glugganum. Hvernig metur Arnar gluggann beint eftir fjórða og síðasta leik?

„Ég hefði viljað vera með tíu stig en svona miðað við hvernig þessi gluggi var að þróast og ferðalögin og allt þar frameftir götunum, að vera á toppnum er náttúrulega bara frábært. Þetta er deildarkeppni og hvort sem við vinnum með níu stig eða tíu stig þá erum við samt búnir að vinna. Sagan mun segja það, þá vinnum við C-deildina þannig að þetta snýst bara um að halda haus og halda fókus og virða hvað þessi landsliðsfótbolti er erfiður, heima og útileikir og ferðalögin. Ég held að þessi gluggi sé ekki kominn til að vera. Ég held að það sé of mikið af vandamálum sem honum fylgir en við vældum ekki og við héldum áfram og erum á toppi riðilsins. Allir geta verið sáttir við það.“

Viðtalið við Arnar má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan. 

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.