Arsenal hefur áhuga á Barcola - Mbeumo færist nær Man Utd - Konate hafnaði tilboði Liverpool
   fim 03. maí 2012 08:00
Magnús Már Einarsson
Spá Fótbolta.net - 2. sæti: Fram
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson
Mynd: Fótbolti.net - Þórdís Inga Þórarinsdóttir
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sérfræðingar Fótbolta.net spá því að Framarar endi í öðru sæti Pepsi-deildarinnar í sumar. 10 sérfræðingar spá í deildina fyrir okkur þetta árið en þeir raða liðunum upp í röð og það lið sem er í efsta sæti fær 12 stig, annað sæti 11 og svo koll af kolli niður í tólfta sæti sem gefur eitt stig.

SPÁMENNIRNIR 
Eiríkur Stefán Ásgeirsson, Elvar Geir Magnússon, Hafliði Breiðfjörð, Heimir Hallgrímsson, Magnús Már Einarsson, Sigurbjörn Hreiðarsson, Tómas Þór Þórðarson, Víðir Sigurðsson, Willum Þór Þórsson, Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson.

Spáin:
1. KR 110 stig
2. Fram 108 stig
3. Stjarnan 91 stig
4. FH 90 stig
5. ÍA 79 stig
6. Valur 73 stig
7. Breiðablik 59 stig
8. ÍBV 54 stig
9. Keflavík 35 stig
10. Grindavík 31 stig
11. Fylkir 30 stig
12. Selfoss 16 stig

Um liðið: Framarar björguðu sér falli á síðustu stundu í fyrra eftir góðan endasprett í deildinni.  Liðið hélt sömu siglingu áfram í vetur en Fram tapaði einungis einum leik í vetrarmótunum.  Liðið varð Reykjavíkurmeistari en tapaði úrslitaleik Lengjubikarsins um síðustu helgi.  


Hvað segir Heimir? Heimir Hallgrímsson aðstoðarlandsliðsþjálfari er sérstakur álitsgjafi Fótbolta.net um liðin í Pepsi-deild karla. Heimir hefur náð mjög góðum árangri með lið ÍBV undanfarin ár.  Síðastliðið haust var Heimir ráðin aðstoðarþjálfari íslenska landsliðsins eftir að Lars Lagerback var ráðinn þjálfari. Hér að neðan má sjá álit Heimis.

Framarar hafa leikið allra liða best á undirbúningstímabilinu og má segja að þeir hafi haldið áfram í þeim gír sem einkenndi þá í lok mótsins í fyrra. Hvort þeir nái að halda sjó og halda áfram að spila allra liða best í sumar veltur að mínu mati á nokkrum atriðum.

Styrkleikar: Styrkleikar Fram liggja fyrst og fremst í skipulaginu. Allir hafa sín hlutverk á hreinu. Varnarlega er liðið það besta á landinu og það mun reynast öðrum liðum erfitt að skora gegn Frömmurum. Ástæðan er fyrst og fremst agi og dugnaður leikmanna, þeir eru fljótir til baka eftir að bolti tapast, en einnig sækir Fram á færri leikmönnum en mörg önnur lið. Þolinmæði er annar styrkleiki sem Fram hefur umfram önnur lið. Þegar Bretarnir tveir komu á miðju sumri fékk liðið meira sjálfstraust og fór að framkvæma þá hluti sem allir vissu að byggju í liðinu. Hraðmótið í maí mun skipta miklu máli fyrir Fram.

Veikleikar: Hópurinn er frekar þunnur. Meiðsli í liðinu eru bönnuð, sér í lagi í ákveðnum leikstöðum. Ég tel að Frömurum vannti betri stjórnanda í miðja vörnina til að vinna titilinn í ár. Ákvarðanartaka í hjarta varnarinnar varð Fram oft að falli í fyrra. Við vonum samt liðsins vegna að þetta vandamál hafi verið lagfært á undirbúningstímabilinu.
Heimavöllurinn er hreinasta hörmung. Bæði myndi henta Frömmurum að spila sinn þétta varnarleik á minni velli og að auki næst aldrei stemming á heimaleikjum liðsins í Laugardalnum.  


Þjálfarinn: Þorvaldur Örlygsson
Þorvaldur Örlygsson hefur sýnt það síðustu ár hversu öflugur þjálfari hann er. Hann var trúr sinni leikaðferð og skipulagi í fyrra þrátt fyrir erfitt gengi framan af móti. Hann var meira að segja samkvæmur sjálfum sér í viðtölum eftir leiki hvort sem gengið var gott eða slæmt. Það merkilegasta við árangur Þorvalds að mínu mati er að kostnaður knattspyrnudeilarinnar hjá Fram er líklega sá lægsti af öllum liðunum í deildinni. Vanalega er fylgni milli árangurs og fjármagns en Fram er undantekningin við regluna.

Lykilmenn: Sam Hewson, Steve Lennon og Sam Tillen.

Gaman að fylgjast með: Ég mun spenntur fylgjast með Ögmundi í markinu. Hann hoppaði í liðið nánast fullmótaður í fyrra og gæti með sömu framförum orðið einn besti markvörður landsins áður en langt um líður.

Líklegt byrjunarlið í upphafi móts:


Stuðningsmaðurinn segir:
Hreimur Örn Heimisson söngvari: ,,Þetta er mjög raunhæf spá ef við höldum lykilmönnunum okkar.  Þar er ég að tala um Lennon, Hewson og þennan hraða kjarna sem Þorvaldur er búinn að byggja upp.  Liðið getur sótt mjög hratt og menn geta leyst hinar ýmsar stöður eins og sést hjá Almarri Ormarssyni sem er kominn í bakvörðinn.  Það er mikið af ungum og efnilegum strákum en hann gæti alveg tekið Arsenal á þetta og farið rangt með þá.  Það má ekkert alltof mikið út af bregða, ef að hópurinn helst heill og enginn fer þá held ég að við séum klárlega að fara að keppa um efstu sætin."

Völlurinn:
Framarar leika að venju á þjóðarleikvangnum, Laugardalsvelli. Sitthvorum megin við Laugardalsvöll eru tvær stúkur. Sú nýrri tekur 3500 áhorfendur í sæti en sú eldri sem var endurbætt fyrir nokkrum árum tekur 6300 áhorfendur í sæti. 

Því taka stúkurnar í heildina 9800 áhorfendur en auk þess eru stæði fyrir 5200 manns og því geta 15000 áhorfendur verið á leik á vellinum. Flóðljós eru við völlinn og því gerist það á haustdögum að hægt er að leika leiki við völlinn síðar á kvöldin en annars staðar. Það sem helst truflar fólk við völlinn er hlaupabrautin sem hann umlykur.

Breytingar á liðinu:

Komnir:
Ásgeir Gunnar Ásgeirsson frá FH
Matthías Kroknes Jóhannsson frá BÍ/Bolungarvík
Sveinbjörn Jónasson frá Þrótti

Farnir:
Andri Júlíusson í fríi frá fótbolta
Arnar Bergmann Gunnlaugsson hættur
Hjálmar Þórarinsson í Berserki
Jón Orri Ólafsson í fríi frá fótbolta
Tómas Leifsson í Selfoss  

Komnir:

Björgólfur Takefusa frá KR

Baldur Ingimar Aðalsteinsson frá Val

Hörður Sigurjón Bjarnason úr Þrótti

Ingólfur Þórarinsson frá Selfossi

Mark Rutgers frá KR

Pétur Georg Markan frá Fjölni

Róbert Örn Óskarsson frá BÍ/Bolungarvík

 

Farnir:

Daníel Hjaltason til Modum í Noregi

Jakob Spangsberg

Milos Glogovac í KF

Viktor Örn Guðmundsson í FH (Var á láni)

Robin Faber


Leikmenn Fram sumarið 2012:
1. Magnús Þormar 

3. Hörður Sigurjón Bjarnason

4. Ingólfur Þórarinsson

5. Mark Rutgers

6. Halldór Smári Sigurðsson

7. Þorvaldur Sveinn Sveinsson

8. Kristinn Magnússon

9. Kjartan Dige

10. Egill Atlason

11. Baldur Ingimar Aðalsteinsson

12. Patrik Atlason

13. Róbert Örn Óskarsson

14. Tómas Guðmundsson

15. Marteinn Briem

16. Pétur Georg Markan

17. Garðar Leifsson

18. Milos Milojevic

19. Svavar Cesar Hjaltested

20. Helgi Sigurðsson

21. Walter Hjaltested

22. Sigurður Egill Lárusson

23. Hjalti Már Hauksson

24. Viktor Jónsson

25. Aron Þrándarson

26. Davíð Atlason

27. Gunnar Helgi Steindórsson

28. Sverrir Þór Garðarsson

30. Björgólfur Takefusa

1 Ögmundur Kristinsson 
4 Kristján Hauksson 
5 Kristinn Ingi Halldórsson 
6 Halldór Hermann Jónsson 
7 Daði Guðmundsson
8 Jón Gunnar Eysteinsson 
9 Samuel Lee Tillen
10 Steven Lennon
11 Almarr Ormarsson
12 Sigurður Hrannar Björnsson
13 Ásgeir Gunnar Ásgeirsson
14 Hlynur Atli Magnússon
15 Samuel Hewson
16 Andri Freyr Sveinsson
17 Hólmbert Aron Friðjónsson
19 Orri Gunnarsson
20 Alan Lowing
22 Ívar Björnsson
23 Benedikt Októ Bjarnason
24 Sveinbjörn Jónasson
25 Jökull Steinn Ólafsson
26 Antonio Ndong Nsambi
27 Matthías Kroknes Jóhannsson
28 Gunnar Oddgeir Birgisson
29 Stefán Birgir Jóhannesson
30 Denis Cardaklija          

Leikir Fram 2012:
7. maí Fram - Valur
10. maí FH - Fram
15. maí Fram - Grindavík
21. maí Fram - Selfoss
24. maí Breiðablik - Fram 
2. júní Fram - KR
14. júní Fylkir - Fram
20. júní Fram - Keflavík
2. júlí Stjarnan - Fram
5. júlí Fram - ÍA
15. júlí ÍBV - Fram
23. júlí Valur - Fram
29. júlí Fram - FH
8. ágúst Grindavík - Fram
12. ágúst Selfoss - Fram
20. ágúst Fram - Breiðablik
27. ágúst KR - Fram
3. september Fram - Fylkir
16. september Keflavík - Fram
20. september Fram - Stjarnan
23. september ÍA - Fram
29. september Fram - ÍBV
Athugasemdir
banner