Sérfræðingar Fótbolta.net spá því að Fylkismenn endi í ellefta og næstneðsta sæti Pepsi-deildarinnar í sumar og falli þar með niður í fyrstu deild. 10 sérfræðingar spá í deildina fyrir okkur þetta árið en þeir raða liðunum upp í röð og það lið sem er í efsta sæti fær 12 stig, annað sæti 11 og svo koll af kolli niður í tólfta sæti sem gefur eitt stig.
SPÁMENNIRNIR
Eiríkur Stefán Ásgeirsson, Elvar Geir Magnússon, Hafliði Breiðfjörð, Heimir Hallgrímsson, Magnús Már Einarsson, Sigurbjörn Hreiðarsson, Tómas Þór Þórðarson, Víðir Sigurðsson, Willum Þór Þórsson, Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson.

Eiríkur Stefán Ásgeirsson, Elvar Geir Magnússon, Hafliði Breiðfjörð, Heimir Hallgrímsson, Magnús Már Einarsson, Sigurbjörn Hreiðarsson, Tómas Þór Þórðarson, Víðir Sigurðsson, Willum Þór Þórsson, Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson.
Spáin:
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. ?
6. ?
7. ?
8. ?
9. ?
10. ?
11. Fylkir 30 stig
12. Selfoss 16 stig
Um liðið: Fylkismenn enduðu í sjöunda sæti Pepsi-deildarinnar í fyrra eftir kaflaskipt tímabil. Undir lokin var leikmannahópurinn ansi þunnskipaður og Árbæingar uppskáru ekki mörg stig undir lok móts. Ólafur Þórðarson lét af störfum eftir tímabilið og í kjölfarið tók Ásmundur Arnarsson við stjórnartaumunum.
|
Hvað segir Heimir? Heimir Hallgrímsson aðstoðarlandsliðsþjálfari er sérstakur álitsgjafi Fótbolta.net um liðin í Pepsi-deild karla. Heimir hefur náð mjög góðum árangri með lið ÍBV undanfarin ár. Síðastliðið haust var Heimir ráðin aðstoðarþjálfari íslenska landsliðsins eftir að Lars Lagerback var ráðinn þjálfari. Hér að neðan má sjá álit Heimis.
Styrkleikar: Þessir ungu strákar sem voru að spila í fyrra litu vel út og ég hef ekki eins miklar áhyggjur af Fylki og margir eru að tala um. Ég held að Ási eigi eftir að ná fínum árangri með Fylki. Ef Finnur Ólafsson verður heill getur hann breytt þessu liði og náð stöðugleika í miðjuspilið. Með vinnudýr eins og Ásgeir Börk við hlið sér gæti Finnur blómstrað í sumar. Styrkleikarnir liggja í þeim krafti sem býr í leikmönnum Fylkis (klárlega arfleið Óla Þórðar).
Veikleikar: Ég er hræddur fyrir hönd Fylkis að byrjunin gæti orðið erfið. Margir lykilleikmenn hafa lítið spilað á undirbúningstímabilinu og það gæti tekið Fylki tíma að stilla strengi. Á pappírnum er hópurinn ekkert sérstaklega sterkur. Fyrir utan fyrstu 11 eru ekki mörg nöfn sem fólk kannast við. Mér finnst líka vanta einhvern afgerandi leikmann í liðið, einhvern alvöru leiðtoga sem leikmenn geta leitað til þegar gengur illa. Þeir fengu mikið af mörkum á sig í fyrra og héldu ekki út leikina, það var þeirra helsta vandamál.
Þjálfarinn: Ásmundur Arnarsson
Ef einhver þjálfari getur náð árangri með mannskap þar sem eru ekki mjög þekktir leikmenn og með lið sem er ekki spáð góðum árangri þá er það Ásmundur Arnarsson. Ási náði ótrúlegum árangri með Fjölni. Þar var hann með leikmenn sem voru ekki mjög þekktir. Þegar harðnar í dalnum er gott að hafa sálfræðinginn og aðstoðarþjálfarann Hauk Inga Guðnason sér við hlið. Báðir miklir heiðursmenn Háttvísi verður í hávegum í Árbænum og aðstoðardómarar anda léttar.
Lykilmenn: Ásgeir Börkur Ásgeirsson, Finnur Ólafsson, Ingimundur Níels Óskarsson
Gaman að fylgjast með: Það verður gaman að fylgjast með Björgólfi Takefusa og spennandi að sjá hvernig hann mun fylla það skarð sem Albert Brynjar Ingason skilur eftir sig. Hvort Bjöggi nær sér á strik getur ráðið úrslitum um gengi Fylkis í sumar.
Líklegt byrjunarlið í upphafi móts:

Stuðningsmaðurinn segir:
Þorsteinn Lár Ragnarsson í XXX Rottweiler: ,,Mín spá er að við verðum í kringum miðju. Við gætum verið að berjast um evrópusæti ef allt gengur upp en ef menn mæta ekki klárir verður fallbaráttan raunin. Við erum með mikið af ungum strákum sem fá tækifæri til að sanna sig. Ég hef trú á þeim þar sem Fylkir hefur verið með eitt öflugasta yngriflokkastarf landsins síðustu áratugi. Við fengum Magnús Þóri frá Keflavík og vænti þess að hann setji nokkur mikilvæg mörk fyrir okkur. Mér líst líka vel á þjálfarateymið sem ég held að geti náð því besta út úr ungum og efnilegum leikmönnum. Fylkir er það félag sem hefur verið lengst í efstudeild núna að KR undanskildum og ég sé ekki að það muni breytast neitt. Ég vil síðan nota tækifærið og pressa á borgaryfirvöld að tryggja fjármagn fyrir nýrri stúku sem er löngu orðin tímabær framkvæmd. Áfram Fylkir."
Völlurinn:
Á Fylkisvelli eru 560 sæti án þaks og stæði fyrir 720 manns en stefnt er á að byggja þak yfir stúkuna á næstunni.
Breytingar á liðinu:
Komnir:
Árni Freyr Guðnason frá ÍR
Björgólfur Takefusa frá Víkingi R. á láni
David Elebert frá Skotlandi
Finnur Ólafsson frá ÍBV
Kristján Finnbogason frá Gróttu
Magnús Þórir Matthíasson frá Keflavík
Árni Freyr Guðnason frá ÍR
Björgólfur Takefusa frá Víkingi R. á láni
David Elebert frá Skotlandi
Finnur Ólafsson frá ÍBV
Kristján Finnbogason frá Gróttu
Magnús Þórir Matthíasson frá Keflavík
Farnir:
Albert Brynar Ingason í FH
Baldur Bett hættur
Fjalar Þorgeirsson í KR
Gylfi Einarsson hættur
Trausti Björn Ríkharðsson í ÍR
Valur Fannar Gíslason í Hauka
Komnir:
Björgólfur Takefusa frá KR
Baldur Ingimar Aðalsteinsson frá Val
Hörður Sigurjón Bjarnason úr Þrótti
Ingólfur Þórarinsson frá Selfossi
Mark Rutgers frá KR
Pétur Georg Markan frá Fjölni
Róbert Örn Óskarsson frá BÍ/Bolungarvík
Farnir:
Daníel Hjaltason til Modum í Noregi
Jakob Spangsberg
Milos Glogovac í KF
Viktor Örn Guðmundsson í FH (Var á láni)
Robin Faber
Leikmenn Fylkis sumarið 2012:
1. Magnús Þormar
3. Hörður Sigurjón Bjarnason
4. Ingólfur Þórarinsson
5. Mark Rutgers
6. Halldór Smári Sigurðsson
7. Þorvaldur Sveinn Sveinsson
8. Kristinn Magnússon
9. Kjartan Dige
10. Egill Atlason
11. Baldur Ingimar Aðalsteinsson
12. Patrik Atlason
13. Róbert Örn Óskarsson
14. Tómas Guðmundsson
15. Marteinn Briem
16. Pétur Georg Markan
17. Garðar Leifsson
18. Milos Milojevic
19. Svavar Cesar Hjaltested
20. Helgi Sigurðsson
21. Walter Hjaltested
22. Sigurður Egill Lárusson
23. Hjalti Már Hauksson
24. Viktor Jónsson
25. Aron Þrándarson
26. Davíð Atlason
27. Gunnar Helgi Steindórsson
28. Sverrir Þór Garðarsson
30. Björgólfur Takefusa
1. Bjarni Þórður Halldórsson
2. Kristján Valdimarsson
3. Ásgeir Börkur Ásgeirsson
4. Finnur Ólafsson
5. Davíð Ásbjörnsson
6. Þórir Hannesson
7. Ingimundur Níels Óskarsson
8. Árni Freyr Guðnason
9. Jóhann Þórhallsson
10. Björgólfur Takefusa
11. Kjartan Ágúst Breiðdal
12. Ólafur Íshólm Ólafsson
13. Benedikt Óli Breiðdal
15. Magnús Þórir Matthíasson
16. Tómas J. Þorsteinsson
17. Ásgeir Örn Arnþórsson
18. Kristján Finnbogason
19. Oddur Ingi Guðmundsson
20. Daníel Freyr Guðmundsson
22. Andri Már Hermannsson
23. Rúrik Andri Þorfinnsson
24. Elís Rafn Björnsson
25. David Elebert
26. Andri Þór Jónsson
27. Styrmir Erlendsson
29. Ásgeir Eyþórsson
30. Hjörtur Hermannsson
32. Hákon Ingi Jónsson
33. Emil Ásmundsson
Leikir Fylkis 2012:
6. maí Fylkir - Keflavík
10. maí Stjarnan - Fylkir
15. maí Fylkir - ÍA
20. maí ÍBV - Fylkir
24. maí Fylkir - Valur
31. maí FH - Fylkir
14. júní Fylkir - Fram
20. júní Selfoss - Fylkir
2. júlí Fylkir - Breiðablik
5. júlí KR - Fylkir
16. júlí Fylkir - Grindavík
23. júlí Keflavík - Fylkir
29. júlí Fylkir - Stjarnan
8. ágúst ÍA - Fylkir
12. ágúst Fylkir - ÍBV
20. ágúst Valur - Fylkir
27. ágúst Fylkir - FH
3. september Fram - Fylkir
16. september Fylkir - Selfoss
20. september Breiðablik - Fylkir
23. september Fylkir - KR
29. september Grindavík - Fylkir
Athugasemdir