Sérfræðingar Fótbolta.net spá því að Stjörnumenn endi í þriðja sæti Pepsi-deildarinnar í sumar. 10 sérfræðingar spá í deildina fyrir okkur þetta árið en þeir raða liðunum upp í röð og það lið sem er í efsta sæti fær 12 stig, annað sæti 11 og svo koll af kolli niður í tólfta sæti sem gefur eitt stig.
SPÁMENNIRNIR
Eiríkur Stefán Ásgeirsson, Elvar Geir Magnússon, Hafliði Breiðfjörð, Heimir Hallgrímsson, Magnús Már Einarsson, Sigurbjörn Hreiðarsson, Tómas Þór Þórðarson, Víðir Sigurðsson, Willum Þór Þórsson, Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson.

Eiríkur Stefán Ásgeirsson, Elvar Geir Magnússon, Hafliði Breiðfjörð, Heimir Hallgrímsson, Magnús Már Einarsson, Sigurbjörn Hreiðarsson, Tómas Þór Þórðarson, Víðir Sigurðsson, Willum Þór Þórsson, Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson.
Spáin:
1. ?
2. ?
3. Stjarnan 91 stig
4. FH 90 stig
5. ÍA 79 stig
6. Valur 73 stig
7. Breiðablik 59 stig
8. ÍBV 54 stig
9. Keflavík 35 stig
10. Grindavík 31 stig
11. Fylkir 30 stig
12. Selfoss 16 stig
Um liðið: Stjörnumenn eru búnir að festa sig vel í sessi í Pepsi-deildinni og í fyrra var liðið hársbreidd frá því að ná Evrópusæti. Samkvæmt spánni mun uppgangurinn halda áfram í Garðabæ í ár en liðinu er spáð þriðja sætinu að þessu sinni.
|
Hvað segir Heimir? Heimir Hallgrímsson aðstoðarlandsliðsþjálfari er sérstakur álitsgjafi Fótbolta.net um liðin í Pepsi-deild karla. Heimir hefur náð mjög góðum árangri með lið ÍBV undanfarin ár. Síðastliðið haust var Heimir ráðin aðstoðarþjálfari íslenska landsliðsins eftir að Lars Lagerback var ráðinn þjálfari. Hér að neðan má sjá álit Heimis.
Það verður spennandi að fylgjast með gengi Stjörnunnar í sumar. Þeir hafa bætt sig á hverju ári. Stjarnan hefur leikmenn í sínu liði sem geta unnið leiki upp á sitt einsdæmi, einn fengsælasta heimavöll landsins og frábæra stuðningsmenn.
Styrkleikar: Hið gamla og sérstaka gervigras í Gaðabæ hefur reynst hin mesta kvöl fyrir önnur lið. Vonandi verður hið nýja jafn happadrjúgt fyrir Stjörnumenn.
Stjarnan er skemmtilegasta skyndisóknarlið landsins, ekki einungis vegna þess að í liðinu eru fljótir og áræðnir leikmenn heldur einnig vegna þess að margir leikmenn koma með í skyndisóknir liðsins. Með komu Garðars Jóh varð sóknarleikurinn fjölhæfari og uppspilspunktur liðsins markvissari og nú hefur hann fengið Gunnar Örn og Kennie Chopart sér við hlið og þeir geta fætt hann jafnvel enn betur en áður. Í föstum leikatriðum eru þeir einnig stórhættulegir. Stjarnan mun skora mörk í leikjum sínum og ef nýju Danirnir eru eins góðir og sögur segja verður Stjarnan í baráttu um titilinn.
Veikleikar: Veikleiki Stjörnunnar hefur verið villtur varnarleikur. Í raun gætu þeir leikmenn sem hafa fyllt varnarlínu Stjörnunar allir spilað framar á vellinum og gleyma sér reyndar oft í þeim stöðum. Útivellir hafa ekki alltaf verið í uppáhaldi hjá Garðabæjarliðinu en með reyndari og sterkari leikmönnum eins og eru þar í dag ættu þau áhrif að minnka.
Mér hefur fundist vanta góðan taktískan varnarmiðjumann í lið Stjörnunar. Einhvern sem bindur betur saman sóknar og varnarleik liðsins og stjórnar uppbyggingu rólegra sókna.
Þjálfarinn: Bjarni Jóhannsson
Hinn síungi þjálfari Bjarni Jóhannsson sem hefur náð stöðugleika og skipulagi en samt haldið þeirri geðveiki sem hefur einkennt Störnuliðið gegnum tíðina. Stundum spila þeir eins og það sé heimsendir í nánd og hver sókn gæti verið sú síðasta. „Við ákváðum bara að ráðast á þá“ er uppáhalds setning Bjarna.
Á bekknum með sér hefur hann einvala lið í Henrik Bödker, Sigurði Dúllu og aðstoðarþjálfaranum geðþekka Kristni Lárussyni.
Lykilmenn: Garðar Jóhannsson, Halldór Orri Björnsson og Laxdal bræðurnir.
Gaman að fylgjast með: Stjarnan mun enda ofarlega en Danirnir munu ráða úrslitum hvort Stjarnan geri alvöru árás á titilinn. Það verður forvitnilegt að sjá hvernig þeir smella inn í liðið.
Líklegt byrjunarlið í upphafi móts:

Stuðningsmaðurinn segir:
Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins: ,,Ég held að Stjörnuliðið sé komið með reynslu í efstu deild sem þeir geta byggt á. Með þennan hóp og tvo nýja Dani sem bundnar eru miklar vonir við þá held ég að liðið geti vel sprungið út í sumar. Augljóslega verða þeir að fá minna af mörkum á sig en þeir hafa verið að gera. Bjarni Jó hefur fundið réttu uppskriftina fyrir þetta lið, það er stór kjarni af strákum sem hafa alist upp í Stjörnunni. Þetta er lið sem menn eru farnir að taka alvarlega og allir vita að getur sprungið út eins og rós."
Völlurinn:
Stjarnan leikur heimaleiki sína á Stjörnuvelli í Garðabæ. Við völlinn er yfirbyggð stúka sem tekur 600 manns í sæti auk 480 í stæði. Grasið sem leikið er á er gervigras og er Stjarnan eina liðið sem leikur ekki heimaleiki á náttúrulegu grasi.
Breytingar á liðinu:
Komnir:
Alexander Scholz frá Danmörku
Arnar Darri Pétursson frá Sönderyske
Gunnar Örn Jónsson frá KR
Kennie Chopart frá Danmörku
Farnir:
Björn Pálsson í Víking Ó. á láni
Grétar Atli Grétarsson í Keflavík
Jesper Holdt Jensen
Magnús Karl Pétursson hættur
Nikolaj Hagelskjaer Pedersen til Frederica
Ólafur Karl Finsen í Selfoss
Víðir Þorvarðarson í ÍBV
Þorvaldur Árnason hættur
Alexander Scholz frá Danmörku
Arnar Darri Pétursson frá Sönderyske
Gunnar Örn Jónsson frá KR
Kennie Chopart frá Danmörku
Farnir:
Björn Pálsson í Víking Ó. á láni
Grétar Atli Grétarsson í Keflavík
Jesper Holdt Jensen
Magnús Karl Pétursson hættur
Nikolaj Hagelskjaer Pedersen til Frederica
Ólafur Karl Finsen í Selfoss
Víðir Þorvarðarson í ÍBV
Þorvaldur Árnason hættur
Komnir:
Björgólfur Takefusa frá KR
Baldur Ingimar Aðalsteinsson frá Val
Hörður Sigurjón Bjarnason úr Þrótti
Ingólfur Þórarinsson frá Selfossi
Mark Rutgers frá KR
Pétur Georg Markan frá Fjölni
Róbert Örn Óskarsson frá BÍ/Bolungarvík
Farnir:
Daníel Hjaltason til Modum í Noregi
Jakob Spangsberg
Milos Glogovac í KF
Viktor Örn Guðmundsson í FH (Var á láni)
Robin Faber
Leikmenn Stjörnunnar sumarið 2012:
1. Magnús Þormar
3. Hörður Sigurjón Bjarnason
4. Ingólfur Þórarinsson
5. Mark Rutgers
6. Halldór Smári Sigurðsson
7. Þorvaldur Sveinn Sveinsson
8. Kristinn Magnússon
9. Kjartan Dige
10. Egill Atlason
11. Baldur Ingimar Aðalsteinsson
12. Patrik Atlason
13. Róbert Örn Óskarsson
14. Tómas Guðmundsson
15. Marteinn Briem
16. Pétur Georg Markan
17. Garðar Leifsson
18. Milos Milojevic
19. Svavar Cesar Hjaltested
20. Helgi Sigurðsson
21. Walter Hjaltested
22. Sigurður Egill Lárusson
23. Hjalti Már Hauksson
24. Viktor Jónsson
25. Aron Þrándarson
26. Davíð Atlason
27. Gunnar Helgi Steindórsson
28. Sverrir Þór Garðarsson
30. Björgólfur Takefusa
1 Ingvar Jónsson
3 Tryggvi Sveinn Bjarnason
4 Jóhann Laxdal
5 Björn Pálsson
6 Hilmar Þór Hilmarsson
7 Atli Jóhannsson
8 Birgir Rarf Baldursson
9 Daníel Laxdal
10 Halldór Orri Björnsson
11 Bjarki Páll Eysteinsson
12 Þorri Geir Rúnarsson
13 Alexander Scholz
14 Hörður Árnason
15 Aron Rúnarsson Heiðdal
17 Sindri Már Sigurþórsson
18 Aron Grétar Jafetsson
19 Hrannar Heimisson
20 Gunnar Örn Jónsson
21 Baldvin Sturluson
22 Ellert Hreinsson
23 Snorri Páll Blöndal
24 Hreiðar Ingi Ársælsson
25 Davíð Guðjónsson
26 Kennie Knak Chopart
27 Garðar Jóhannsson
28 Darri Steinn Konráðsson
29 Arnar Darri Pétursson
30 Sveinn Sigurður Jóhannesson
Leikir Stjörnunnar 2012:
6. maí KR - Stjarnan
10. maí Stjarnan - Fylkir
14. maí Keflavík - Stjarnan
21. maí Grindavík - Stjarnan
24. maí Stjarnan - ÍA
31. maí ÍBV - Stjarnan
16. júní Stjarnan - Valur
20. júní FH - Stjarnan
2. júlí Stjarnan - Fram
5. júlí Selfoss - Stjarnan
16. júlí Stjarnan - Breiðablik
21. júlí Stjarnan - KR
29. júlí Fylkir - Stjarnan
8. ágúst Stjarnan - Keflavík
12. ágúst Stjarnan - Grindavík
20. ágúst ÍA - Stjarnan
26. ágúst Stjarnan - ÍBV
2. september Valur - Stjarnan
16. september Stjarnan - FH
20. september Fram - Stjarnan
23. september Stjarnan - Selfoss
29. september Breiðablik - Stjarnan
Athugasemdir