Sérfræðingar Fótbolta.net spá því að Skagamenn endi í fimmta sæti Pepsi-deildarinnar í sumar. 10 sérfræðingar spá í deildina fyrir okkur þetta árið en þeir raða liðunum upp í röð og það lið sem er í efsta sæti fær 12 stig, annað sæti 11 og svo koll af kolli niður í tólfta sæti sem gefur eitt stig.
SPÁMENNIRNIR
Eiríkur Stefán Ásgeirsson, Elvar Geir Magnússon, Hafliði Breiðfjörð, Heimir Hallgrímsson, Magnús Már Einarsson, Sigurbjörn Hreiðarsson, Tómas Þór Þórðarson, Víðir Sigurðsson, Willum Þór Þórsson, Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson.

Eiríkur Stefán Ásgeirsson, Elvar Geir Magnússon, Hafliði Breiðfjörð, Heimir Hallgrímsson, Magnús Már Einarsson, Sigurbjörn Hreiðarsson, Tómas Þór Þórðarson, Víðir Sigurðsson, Willum Þór Þórsson, Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson.
Spáin:
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. ÍA 79 stig
6. Valur 73 stig
7. Breiðablik 59 stig
8. ÍBV 54 stig
9. Keflavík 35 stig
10. Grindavík 31 stig
11. Fylkir 30 stig
12. Selfoss 16 stig
Um liðið: Skagamenn eru mættir aftur í deild þeirra bestu eftir fjögurra ára fjarveru. ÍA rúllaði yfir fyrstu deildina í fyrra og hefur fengið góðan liðsstyrk í vetur en þar má meðal annars nefna Jóhannes Karl Guðjónsson sem er kominn heim úr atvinnumennsku. Skagamönnum er spáð góðu gengi í sumar.
|
Hvað segir Heimir? Heimir Hallgrímsson aðstoðarlandsliðsþjálfari er sérstakur álitsgjafi Fótbolta.net um liðin í Pepsi-deild karla. Heimir hefur náð mjög góðum árangri með lið ÍBV undanfarin ár. Síðastliðið haust var Heimir ráðin aðstoðarþjálfari íslenska landsliðsins eftir að Lars Lagerback var ráðinn þjálfari. Hér að neðan má sjá álit Heimis.
Það eru ekki bara stuðningsmenn ÍA sem hafa beðið eftir því að liðið leiki aftur í efstu deild því allir knattspyrnuáhugamenn á landinu hafa saknað þeirra gulu og fagna því að þeir eru mættir að nýju. Skagamenn hafa byggt upp gott lið og koma fullþroskaðir til leiks. Þeir rúlluðu upp fyrstu deildinni í fyrra og hafa síðan þá fengið sterka leikmenn með hjarta fyrir félaginu og mikla reynslu. Þetta gæti orðið spennandi tímabil fyrir Skagamenn.
Styrkleikar: Aðalstyrkleiki ÍA er umhverfið, staðurinn, metnaðurinn og hefðin. Það er einhvern vegin allt þarna sem öskrar á árangur.
Með Ármann Smára í vörninni, Jóa Kalla á miðjunni og Garðari Gunnlaugs frammi hefur heildarmynd Skagaliðsins batnað gríðarlega (gæði, reynsla og kraftur). Allir að koma úr atvinnumennsku og allir á besta aldri.
Bretarnir Doninger og Gary Martin verða áfram í sviðsljósinu hjá Skagaliðinu, báðir miklir markaskorarar. Í raun hefur liðið marga leikmenn sem skora mörk reglulega. Sóknarstyrkur liðsins liggur í mjög hröðum og vel útfærðum skyndisóknum. Skagamenn eru kraftmiklir og líkamlega sterkir. Þeir verða klárir í bardagann.
Veikleikar: Það er erfitt að sjá einhvern veikleika í Skagaliðinu. Auðvitað er alltaf erfitt að fara upp um deild og einhverjir leikmenn eru mögulega ekki tilbúnir í það. Garðar og Ármann Smári hafa verið meiðslapésar og það skiptir sköpum að þessir menn haldist heilir ef ÍA ætlar að blanda sér í toppbaráttuna. Það er langt síðan nýliðar í deildinni hafa verið jafn vel mannaðir og forvitnilegt að sjá hvaða árangursmarkmið þeir setja sér. Að halda sér í deildinni er allt of metnaðarlaust markmið. Kröfur stuðningsmanna og umhverfisins gætu verið of miklar og það er aldrei hollt að fara fram úr sér.
Þjálfarinn: Þórður Þórðarson
Þórður Þórðarson hefur vaxið mikið sem þjálfari á síðustu árum og það verður spennandi að sjá hvernig honum vegnar í efstu deild. Það er ekki oft sem maður sér fyrrverandi markvörð ná svo góðum árangri sem aðalþjálfari (man bara í fljótheitum eftir Dino Zoff). Þórður Guðjónsson hefur aðstoðað nafna sinn og þar er nú kofinn ekki tómur. Það starf sem nafnarnir hafa unnið á Skaganum síðustu ár er eftirtektarvert. Dean Martin er þriðji meðlimur þjálfarateymisins og hans verkefni er styrktarþátturinn. Allt metnaðarfullir þjálfarar sem þekkja klúbbinn eins vel og hægt er.
Lykilmenn: Jóhannes Karl Guðjónsson, Mark Doninger og Garðar Gunnlaugsson. Allir í þeim klassa að geta orðið besti leikmaður deildarinnar.
Gaman að fylgjast með: Það verður spennandi að fylgjast með mörgum leikmönnum í Skagaliðinu og það verður meðal annars gaman að sjá hvernig Kári Ársælsson plummar sig. Hann hefur verið svolítið gagnrýndur hjá Blikum og það verður spennandi að sjá hann á skaganum.
Líklegt byrjunarlið í upphafi móts:

Stuðningsmaðurinn segir:
Brynjólfur Þór Guðmundsson fréttamaður á Rúv: ,,Ég held að þetta geti alveg verið raunhæf spá. Miðað við mannskap er 5-6. sætið eitthvað sem við ættum að geta verið mjög sátt við. Ef allt gengur upp þá gætum við farið hærra en ef við lendum í áföllum gætum við farið neðar, ég á samt ekki von á því. Ég held að við séum með eina bestu miðju landsins og spræka sóknarmenn. Þetta veltur mikið á því hvernig vörnin kemur út, bæði með heilsu miðvarða og hvort einhver stígi upp í vinstri bakverðinum."
Völlurinn:
ÍA leikur heimaleiki sína á Akranesvelli þar sem er yfirbyggð stúka fyrir 718 manns. Þar eru einnig stór grasbrekka fyrir áhorfendur.
Breytingar á liðinu:
Komnir:
Ármann Smári Björnsson frá Hartlepool
Garðar Gunnlaugsson frá Unterhaching
Jóhannes Karl Guðjónsson frá Huddersfield
Jón Vilhelm Ákason frá Val
Kári Ársælsson frá Breiðabliki
Ármann Smári Björnsson frá Hartlepool
Garðar Gunnlaugsson frá Unterhaching
Jóhannes Karl Guðjónsson frá Huddersfield
Jón Vilhelm Ákason frá Val
Kári Ársælsson frá Breiðabliki
Farnir:
Guðjón Heiðar Sveinsson hættur
Hjörtur Júlíus Hjartarson í Víking R.
Ragnar Leósson í ÍBV
Reynir Leósson í Víking R.
Stefán Þór Þórðarson hættur
Komnir:
Björgólfur Takefusa frá KR
Baldur Ingimar Aðalsteinsson frá Val
Hörður Sigurjón Bjarnason úr Þrótti
Ingólfur Þórarinsson frá Selfossi
Mark Rutgers frá KR
Pétur Georg Markan frá Fjölni
Róbert Örn Óskarsson frá BÍ/Bolungarvík
Farnir:
Daníel Hjaltason til Modum í Noregi
Jakob Spangsberg
Milos Glogovac í KF
Viktor Örn Guðmundsson í FH (Var á láni)
Robin Faber
Leikmenn ÍA sumarið 2012:
1. Magnús Þormar
3. Hörður Sigurjón Bjarnason
4. Ingólfur Þórarinsson
5. Mark Rutgers
6. Halldór Smári Sigurðsson
7. Þorvaldur Sveinn Sveinsson
8. Kristinn Magnússon
9. Kjartan Dige
10. Egill Atlason
11. Baldur Ingimar Aðalsteinsson
12. Patrik Atlason
13. Róbert Örn Óskarsson
14. Tómas Guðmundsson
15. Marteinn Briem
16. Pétur Georg Markan
17. Garðar Leifsson
18. Milos Milojevic
19. Svavar Cesar Hjaltested
20. Helgi Sigurðsson
21. Walter Hjaltested
22. Sigurður Egill Lárusson
23. Hjalti Már Hauksson
24. Viktor Jónsson
25. Aron Þrándarson
26. Davíð Atlason
27. Gunnar Helgi Steindórsson
28. Sverrir Þór Garðarsson
30. Björgólfur Takefusa
1 Páll Gísli Jónsson
2 Aron Ýmir Pétursson
3 Páll S. Einarsson
4 Kári Ársælsson
5 Heimir Einarsson
6 Ármann S. Björnsson
7 Gary Martin
8 Jóhannes Karl Guðjónsson
9 Garðar Bergmann Gunnlaugsson
10 Jón V. Ákason
11 Arnar Már Guðjónsson
12 Árni Snær Ólafsson
13 Sigurjón Guðmundsson
14 Ólafur Valur Valdimarsson
15 Guðmundur Böðvar Guðjónsson
16 Andri Adolphsson
17 Hlynur Hauksson
18 Hallur Flosason
19 Eggert Kári Karlsson
20 Fjalar Örn Sigurðsson
21 Dean Edward Martin
22 Mark Doninger
23 Einar Logi Einarsson
24 Andri Geir Alexandersson
25 Zlatko Krikic
26 Atli Albertsson
27 Gylfi V. R. Gylfason
28 Teitur Pétursson
29 Jón Björgvin Kristjánsson
30 Gísli Þór Gíslason
Leikir ÍA 2012:
6. maí Breiðablik - ÍA
10. maí ÍA - KR
15. maí Fylkir - ÍA
20. maí ÍA - Keflavík
24. maí Stjarnan - ÍA
2. júní Grindavík - ÍA
15. júní ÍA - ÍBV
20. júní Valur - ÍA
30. júní ÍA - FH
5. júlí Fram - ÍA
16. júlí ÍA - Selfoss
23. júlí ÍA - Breiðablik
29. júlí KR - ÍA
8. ágúst ÍA - Fylkir
12. ágúst Keflavík - ÍA
20. ágúst ÍA - Stjarnan
26. ágúst ÍA - Grindavík
2. september ÍBV - ÍA
16. september ÍA - Valur
20. september FH - ÍA
23. september ÍA - Fram
29. september Selfoss - ÍA
Athugasemdir