Arsenal hefur áhuga á Barcola - Mbeumo færist nær Man Utd - Konate hafnaði tilboði Liverpool
   sun 29. apríl 2012 08:00
Fótbolti.net
Spá Fótbolta.net - 6. sæti: Valur
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson
Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson
Mynd: Fótbolti.net - Þórdís Inga Þórarinsdóttir
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Þórdís Inga Þórarinsdóttir
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Sérfræðingar Fótbolta.net spá því að Valur endi í sjötta sæti Pepsi-deildarinnar í sumar. 10 sérfræðingar spá í deildina fyrir okkur þetta árið en þeir raða liðunum upp í röð og það lið sem er í efsta sæti fær 12 stig, annað sæti 11 og svo koll af kolli niður í tólfta sæti sem gefur eitt stig.

SPÁMENNIRNIR 
Eiríkur Stefán Ásgeirsson, Elvar Geir Magnússon, Hafliði Breiðfjörð, Heimir Hallgrímsson, Magnús Már Einarsson, Sigurbjörn Hreiðarsson, Tómas Þór Þórðarson, Víðir Sigurðsson, Willum Þór Þórsson, Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson.

Spáin:
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. ?
6. Valur 73 stig
7. Breiðablik 59 stig
8. ÍBV 54 stig
9. Keflavík 35 stig
10. Grindavík 31 stig
11. Fylkir 30 stig
12. Selfoss 16 stig

Um liðið: Valsmenn unnu Reykjavíkurmótið og Lengjubikarinn í fyrra og eftir gott gengi framan af sumri fjaraði undir gengi liðsins og lokaniðurstaðan varð fimmta sæti í Pepsi-deildinni.  Líkt og oft áður eru milkar breytingar á Hlíðarenda en Valsmenn hafa fengið sjö nýja leikmenn í vetur og misst níu leikmenn.


Hvað segir Heimir? Heimir Hallgrímsson aðstoðarlandsliðsþjálfari er sérstakur álitsgjafi Fótbolta.net um liðin í Pepsi-deild karla. Heimir hefur náð mjög góðum árangri með lið ÍBV undanfarin ár.  Síðastliðið haust var Heimir ráðin aðstoðarþjálfari íslenska landsliðsins eftir að Lars Lagerback var ráðinn þjálfari. Hér að neðan má sjá álit Heimis.

Líkt og undanfarin ár eru miklar breytingar á leikmannahópi Vals. Hingað til hafa miklar mannabreytingar ekki verið ávísun á góðan árangur. Það er því verðugt verkefni fyrir Þjálfarana Kristján og Frey að búa til sterka liðsheild úr nokkuð fjölmennum leikmannahópi Vals.

Styrkleikar: Miðjan hjá Val er ógnar sterk. Haukur Páll Sigurðsson, Guðjón Pétur Lýðsson og Rúnar Már Sigurjónsson skipa eitt sterkasta miðjutríó landsins. Allir hafa þeir afburða hæfileika en á ólíkum sviðum. Valur skoraði aukin heldur mikið af mörkum í Lengjubikarnum og fengu mörkin úr mörgum áttum en í fyrra var markaskorun vandamál hjá Val.  

Veikleikar: Margir nýjir leikmenn gætu orsakað ósamstilltan hóp. Einnig eru margir leikmenn svipaðir af getu. Að mínu mati vantar fleiri afgerandi leikmenn svo Valur geti blandað sér í titilbaráttu. Vörnin og sér í lagi markvarslan gæti orðið veikleiki hjá Val í sumar. Sindri Snær og Ásgeir Þór eru ólíkir markmenn og báðir hafa sína kosti en líka galla. Varnarlínan hefur líka breyst. Frændur okkar frá Færeyjum léku þar stórt hlutverk í fyrra og nokkuð margir leikmenn hafa spilað í bakvarðarstöðunum í vetur. Miðverðina skortir hraða.

Þjálfarinn: Kristján Guðmundsson
Kristján Guðmundsson hefur sýnt það í gegnum tíðina hversu öflugur þjálfari hann er. Hann náði frábærum árangri með Keflvíkinga gerði í framhaldinu góða hluti í Færeyjum. Frá því haustið 2010 hefur hann stýrt liði Vals og náð athyglisverðum árangri þrátt fyrir oft á tíðum óaðlaðandi vinnuaðstæður.
Aðstoðarþjálfarinn er Freyr Alexandersson. Einn af efnilegustu og metnaðarfyllstu þjálfurum landsins og klárt að hann mun taka að sér stærri verkefni áður en langt um líður. 
Þjálfararnir eiga erfitt verkefni fyrir höndum í sumar. Að búa til lið og samstilltan hóp úr leikmönnum sem koma hver úr sinni áttinni og fáir þeirra með innbyggt Vals hjarta. Ef það tekst getur Valur blandað sér baráttuna um titilinn.


Lykilmenn: Miðjumennirnir Haukur Páll Sigurðsson, Guðjón Pétur Lýðsson og Rúnar Már verða í lykilhlutverkum hjá Val í sumar.

Gaman að fylgjast með: Það verður gaman að fylgjast með nokkrum leikmönnum hjá Val. Nýju leikmennirnir Brynjar Kristmunds, Kristinn Freyr, Ásgeir Þór og Hafsteinn Briem geta allir sprungið út. Ég er hins vegar spenntastur að sjá hvernig Atli Heimisson mun spila í sumar eftir nokkra dvöl í neðri deildum í Noregi.

Líklegt byrjunarlið í upphafi móts:


Stuðningsmaðurinn segir:
Breki Logason fréttamaður: ,, „Ef spá .net rætist verða það vissulega vonbrigði. Valsmenn gera meiri kröfur en að enda um miðja deild og satt best að segja hefur verið fínn taktur í þessu í vetur. Meðalaldur liðsins er að ég held 23 ár og lækkaði mjög við brotthvarf okkar besta vinar. Ef að við höfum fundið markaskorara í Atla Heimissyni og Guðjón Pétur Lýðsson spilar jafn vel og síðasta sumar verðum við ofar. Ég vil biðja alla áhugamenn um knattspyrnu að fylgjast sérstaklega með Rúnari Má Sigurjónssyni sem á eftir að slá í gegn. Hann ásamt Hauki Páli verða flottir á miðjunni og í hópnum er fullt af ungum gröðum strákum. Breytingarnar á liðinu frá síðasta tímabili eru meiri en menn ætluðu sér, en hryggjarstykki síðasta árs eru þarna enn. Það verður gaman að fylgjast með Ásgeiri í markinu og ég vil minna Hörð Sveinsson á að hann skuldar okkur svona 15 mörk, við viljum sjá þau koma í sumar vinur. Það má kannski líka nefna það að mikill hugur er í okkur sem stöndum fyrir utan liðið, það verður partý í Fjósinu langt fram á haust. Áfram Valur."

Völlurinn:
Valur leikur heimaleiki sína á Vodafone vellinum á Hlíðarenda þar sem glæsilegur völlur opnaði fyrir nokkrum árum. Hann tekur 1201 áhorfendur í sæti auk þess sem stæði eru undir þaki stúkunnar fyrir 40 manns. Gengt stúkunni eru stæði fyrir aftan auglýsingaskilti fyrir 980 manns. 

Breytingar á liðinu:

Komnir:
Atli Heimisson frá Asker 
Ásgeir Þór Ingólfsson frá Haukum 
Brynjar Kristmundsson frá Víkingi Ó. 
Hafsteinn Briem frá HK 
Hilmar Rafn Emilsson frá Haukum 
Kristinn Freyr Sigurðsson frá Fjölni 
Matarr Jobe aftur úr láni frá Víkingi Ólafsvík
Úlfar Hrafn Pálsson frá Haukum 
 

Farnir:
Christian Mouritsen til HB
Guðmundur Steinn Hafsteinsson í Víking Ó.
Haraldur Björnsson í Sarpsborg
Jón Vilhelm Ákason í ÍA
Jónas Þór Næs til Fremad Amager
Pól Jóhannus Justinussen til Aab
Sigurbjörn Hreiðarsson í Hauka
Ingólfur Sigurðsson í Lyngby
Arnar Sveinn Geirsson, hættur  

Komnir:

Björgólfur Takefusa frá KR

Baldur Ingimar Aðalsteinsson frá Val

Hörður Sigurjón Bjarnason úr Þrótti

Ingólfur Þórarinsson frá Selfossi

Mark Rutgers frá KR

Pétur Georg Markan frá Fjölni

Róbert Örn Óskarsson frá BÍ/Bolungarvík

 

Farnir:

Daníel Hjaltason til Modum í Noregi

Jakob Spangsberg

Milos Glogovac í KF

Viktor Örn Guðmundsson í FH (Var á láni)

Robin Faber


Leikmenn Vals sumarið 2012:
1. Magnús Þormar 

3. Hörður Sigurjón Bjarnason

4. Ingólfur Þórarinsson

5. Mark Rutgers

6. Halldór Smári Sigurðsson

7. Þorvaldur Sveinn Sveinsson

8. Kristinn Magnússon

9. Kjartan Dige

10. Egill Atlason

11. Baldur Ingimar Aðalsteinsson

12. Patrik Atlason

13. Róbert Örn Óskarsson

14. Tómas Guðmundsson

15. Marteinn Briem

16. Pétur Georg Markan

17. Garðar Leifsson

18. Milos Milojevic

19. Svavar Cesar Hjaltested

20. Helgi Sigurðsson

21. Walter Hjaltested

22. Sigurður Egill Lárusson

23. Hjalti Már Hauksson

24. Viktor Jónsson

25. Aron Þrándarson

26. Davíð Atlason

27. Gunnar Helgi Steindórsson

28. Sverrir Þór Garðarsson

30. Björgólfur Takefusa

1. Ásgeir Þór Magnússon
2. Úlfar Hrafn Pálsson
3. Brynjar Kristmundsson
4. Halldór Kristinn Halldórsson
5. Atli Sveinn Þórarinsson
6. Hafsteinn Briem
7. Haukur Páll Sigurðsson 
8. Rúnar Már Sigurjónsson
9. Hörður Sveinsson
10. Rúnar Már Sigurjónsson
11. Matthías Guðmundsson
12. Sindri Snær Jensson
14. Kolbeinn Kárason
15. Hilmar Rafn Emilsson
16. Atli Heimisson
17. Þórir Guðjónsson
18. Kristinn Freyr Sigurðsson
19. Ásgeir Þór Ingólfsson
20. Indriði Áki Þorláksson
22. Matarr Jobe
23. Andri Fannar Stefánsson
27. Andri Sigurðsson
28. Haukur Ásberg Hilmarsson
29. Tómas Aron Tómasson
30. Guðni Rúnar Ólafsson

Leikir Vals 2012:
7. maí Fram - Valur
10. maí Valur - Selfoss
14. maí Breiðablik - Valur
20. maí Valur - KR
24. maí Fylkir - Valur
31. maí Valur - Keflavík
16. júní Stjarnan - Valur
20. júní Valur - ÍA
29. júní ÍBV - Valur
5. júlí Grindavík - Valur
15. júlí Valur - FH
23. júlí Valur - Fram
29. júlí Selfoss - Valur
8. ágúst Valur - Breiðablik
12. ágúst KR - Valur
20. ágúst Valur - Fylkir
27. ágúst Keflavík - Valur
2. september Valur - Stjarnan
16. september ÍA - Valur
20. september Valur - ÍBV
23. september Valur - Grindavík
29. september FH - Valur
Athugasemdir
banner
banner