Sérfræðingar Fótbolta.net spá því að Eyjamenn endi í áttunda sæti Pepsi-deildarinnar í sumar. 10 sérfræðingar spá í deildina fyrir okkur þetta árið en þeir raða liðunum upp í röð og það lið sem er í efsta sæti fær 12 stig, annað sæti 11 og svo koll af kolli niður í tólfta sæti sem gefur eitt stig.
SPÁMENNIRNIR
Eiríkur Stefán Ásgeirsson, Elvar Geir Magnússon, Hafliði Breiðfjörð, Heimir Hallgrímsson, Magnús Már Einarsson, Sigurbjörn Hreiðarsson, Tómas Þór Þórðarson, Víðir Sigurðsson, Willum Þór Þórsson, Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson.

Eiríkur Stefán Ásgeirsson, Elvar Geir Magnússon, Hafliði Breiðfjörð, Heimir Hallgrímsson, Magnús Már Einarsson, Sigurbjörn Hreiðarsson, Tómas Þór Þórðarson, Víðir Sigurðsson, Willum Þór Þórsson, Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson.
Spáin:
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. ?
6. ?
7. ?
8. ÍBV 54 stig
9. Keflavík 35 stig
10. Grindavík 31 stig
11. Fylkir 30 stig
12. Selfoss 16 stig
Um liðið: Eyjamenn hafa verið í toppbaráttunni í Pepsi-deildinni undanfarin tvö ár. Í fyrra var liðið í baráttunni um titilinn þar til í næstsíðustu umferð og í hitteðfyrra hefði liðið orðið meistari með sigri á Keflavík í lokaumferðinni. Nýr þjálfari er í brúnni hjá Eyjamönnum í ár en Magnús Gylfason tók við liðinu af Heimi Hallgrímssyni síðastliðið haust.
|
Hvað segir Heimir? Heimir Hallgrímsson aðstoðarlandsliðsþjálfari er sérstakur álitsgjafi Fótbolta.net um liðin í Pepsi-deild karla. Heimir hefur náð mjög góðum árangri með lið ÍBV undanfarin ár. Síðastliðið haust var Heimir ráðin aðstoðarþjálfari íslenska landsliðsins eftir að Lars Lagerback var ráðinn þjálfari. Hér að neðan má sjá álit Heimis.
Það er mjög erfitt fyrir mig að vera hlutlaus álitsgjafi að þessu sinni. Síðustu ár hefur ÍBV alltaf verið spáð botnbaráttu. Ástæðan fyrir þessari spá í ár er líklega úrslitin í æfingaleikjunum og meiðsli lykilmanna. Ég er fullviss að ÍBV mun berjast á hinum enda töflunar þriðja árið í röð.
Styrkleikar: Leikmannahópurinn hefur haldist nær óbreyttur í 3 ár og það er lykill að stöðugleika. Mjög sterkir leikmenn hafa bæst í hópinn hjá ÍBV og leikmannahópurinn er mun sterkari og breiðari en í fyrra. Ég er einnig viss að einhver ný andlit munu bætast við hópinn í upphafi móts vegna meiðsla lykilmanna. Sóknarlega er ÍBV betur mannað en síðustu ár. Aaron Spear, Eyþór Helgi og Christian Olsen bætast allir við sóknarlínu ÍBV og þar mun styrkleiki liðsins liggja. Stemmingin á leikjum ÍBV hefur vaxið síðustu ár bæði á heimavelli sem og útivelli ég tel það sem einn af styrkleikjum liðsins.
Veikleikar: Byrjun Íslandsmótsins skiptir miklu um gengi liðanna. Fyrstu leikirnir gætu orðið ÍBV erfiðir vegna meiðsla Andra Ólafs, Tryggva Guðmunds og Gunnars Más. Allt lykil leikmenn. Hvort og hvenær þeir mæta til leiks ræður miklu um gengi liðsins í sumar. Aukin heldur eru leikmenn eins og Ragnar Leósson og Tonny Mawejje að hitta hópinn fyrst þessa daganna. Helmingur hópsins hefur æft eins og vanalega í Reykjavik. Fyrir nýjan þjálfara er þessi staða alltaf erfið en Maggi Gylfa þekkir þetta frá því hann þjálfaði ÍBV fyrir nokkrum árum. ÍBV hefur þess vegna aldrei getað stillt upp því byrjunarliði sem mun hefja Íslandsmótið það er veikleiki. Eins og staðan er á leikmannahópnum í dag hef ég áhyggjur af varnarleiknum.
Þjálfarinn: Magnús Gylfason
Maggi Gylfa (eða lúðurinn) er ljúfur drengur sem náði sérdeilis góðum árangri með ÍBV liðið árin 2003 og 2004. Maggi þekkir deildina eins og handarbakið á sér enda verið sérfræðingur í Pepsimörkunum síðustu ár. Ef hann lendir í vanda eru hæg heimatökin að fá sérfræðiaðstoð hjá Hödda Magg og Tómasi Inga. Aðstoðarþjálfarann Dragan Kazic þekkja færri en hann er að mínu mati einn allra besti þjálfari landsins og verður Magga mjög mikilvægur í sumar.
Lykilmenn: Það er ósanngjarnt að láta mig telja upp einhverja lykilmenn í ÍBV liðinu. Hins vegar verða leikmenn eins og Rassmus Christiansen, Þórarinn Ingi Valdimarsson og Matt Garner að taka leiðtogahlutverkið í upphafi mótsins hjá ÍBV í fjarveru fyrirliðanna.
Gaman að fylgjast með: Ég hlakka til að sjá Guðmund Þórarinsson í nýju hlutverki. Hann hefur spilað glimrandi vel á miðjunni í vetur og heldur því vonandi áfram í sumar.
Líklegt byrjunarlið í upphafi móts:

Stuðningsmaðurinn segir:
Elliði Vignisson bæjarstjóri,,Það kemur ekki á óvart að okkur sé spáð áttunda sæti. Það er ljóst að í upphafi tímabils munum við þurfa að glíma við meiðsli og það er ýmis óvissa í kringum liðið. Mín tilfinning er að liðið eigi eftir að koma verulega á óvart, hefðin hefur verið sú að okkur er yfirleitt spáð lakara gengi en niðurstaðan verður. Ég hef fulla trú á liðinu, við erum með fullt af ungum og efnilegum leikmönnum í bland við eldri og reynslumeiri og liðið á mjög eindreginn stuðning hér í Eyjum og sterkan heimavöll. Það er þessi blanda sem á eftir að skila árangri í sumar."
Völlurinn:
ÍBV leikur heimaleiki sína á Hásteinsvelli í Vestmannaeyjum. Á vellinum er nýleg stúka sem byggð var fyrir nokkrum árum. Völlurinn tekur um 3000 áhorfendur í heildina en stúkan ein og sér tekur 540 í sæti.
Breytingar á liðinu:
Komnir:
Gauti Þorvarðarson frá KFS
Gunnar Már Guðmundsson frá FH
Christian Olsen frá Danmörku
Eyþór Helgi Birgisson frá HK
Ragnar Leósson frá ÍA
Víðir Þorvarðarson frá Stjörnunni
Gauti Þorvarðarson frá KFS
Gunnar Már Guðmundsson frá FH
Christian Olsen frá Danmörku
Eyþór Helgi Birgisson frá HK
Ragnar Leósson frá ÍA
Víðir Þorvarðarson frá Stjörnunni
Farnir:
Anton Bjarnason lánaður til Hauka
Denis Sytnik
Finnur Ólafsson í Fylki
Komnir:
Björgólfur Takefusa frá KR
Baldur Ingimar Aðalsteinsson frá Val
Hörður Sigurjón Bjarnason úr Þrótti
Ingólfur Þórarinsson frá Selfossi
Mark Rutgers frá KR
Pétur Georg Markan frá Fjölni
Róbert Örn Óskarsson frá BÍ/Bolungarvík
Farnir:
Daníel Hjaltason til Modum í Noregi
Jakob Spangsberg
Milos Glogovac í KF
Viktor Örn Guðmundsson í FH (Var á láni)
Robin Faber
Leikmenn ÍBV sumarið 2012:
1. Magnús Þormar
3. Hörður Sigurjón Bjarnason
4. Ingólfur Þórarinsson
5. Mark Rutgers
6. Halldór Smári Sigurðsson
7. Þorvaldur Sveinn Sveinsson
8. Kristinn Magnússon
9. Kjartan Dige
10. Egill Atlason
11. Baldur Ingimar Aðalsteinsson
12. Patrik Atlason
13. Róbert Örn Óskarsson
14. Tómas Guðmundsson
15. Marteinn Briem
16. Pétur Georg Markan
17. Garðar Leifsson
18. Milos Milojevic
19. Svavar Cesar Hjaltested
20. Helgi Sigurðsson
21. Walter Hjaltested
22. Sigurður Egill Lárusson
23. Hjalti Már Hauksson
24. Viktor Jónsson
25. Aron Þrándarson
26. Davíð Atlason
27. Gunnar Helgi Steindórsson
28. Sverrir Þór Garðarsson
30. Björgólfur Takefusa
1. Abel Dhaira
2. Brynjar Gauti Guðjónsson
3. Matt Nicholas Paul Garner
4. Gunnar Már Guðmundsson
5. Þórarinn Ingi Valdimarsson
6. Andri Ólafsson
7. Guðmundur Þórarinsson
8. Yngvi Magnús Borgþórsson
9. Tryggvi Guðmundsson
10. Aaron Spear
13. Kjartan Guðjónsson
14. Ragnar Leósson
15. Tonny Mawejje
16. Jón Ingason
17. Friðrik Már Sigurðsson
18. Hilmar Ragnarsson
19. Arnór Eyvar Ólafsson
20. Björn Axel Guðjónsson
21. Christian Steen Olsen
22. Gauti Þorvarðarson
23. Eyþór Helgi Birgisson
24. Óskar Zoega Elías Óskarsson
25. Guðjón Orri Sigurjónsson
26. Bjarki Axelsson
28. Rasmus Steenberg Christiansen
29. Víðir Þorvarðarson
30. Ian David Jeffs
Leikir ÍBV 2012:
6. maí Selfoss - ÍBV
10. maí ÍBV - Breiðablik
15. maí KR - ÍBV
20. maí ÍBV - Fylkir
24. maí Keflavík - ÍBV
31. maí ÍBV - Stjarnan
15. júní ÍA - ÍBV
20. júní Grindavík - ÍBV
29. júní ÍBV - Valur
15. júlí ÍBV - Fram
22. júlí ÍBV - Selfoss
26. júlí FH - ÍBV
29. júlí Breiðablik - ÍBV
8. ágúst ÍBV - KR
12. ágúst Fylkir - ÍBV
20. ágúst ÍBV - Keflavík
26. ágúst Stjarnan - ÍBV
2. september ÍBV - ÍA
16. september ÍBV - Grindavík
20. september Valur - ÍBV
23. september ÍBV - FH
29. september Fram - ÍBV
Athugasemdir