Sérfræðingar Fótbolta.net spá því að FH-ingar endi í fjórða sæti Pepsi-deildarinnar í sumar. 10 sérfræðingar spá í deildina fyrir okkur þetta árið en þeir raða liðunum upp í röð og það lið sem er í efsta sæti fær 12 stig, annað sæti 11 og svo koll af kolli niður í tólfta sæti sem gefur eitt stig.
SPÁMENNIRNIR
Eiríkur Stefán Ásgeirsson, Elvar Geir Magnússon, Hafliði Breiðfjörð, Heimir Hallgrímsson, Magnús Már Einarsson, Sigurbjörn Hreiðarsson, Tómas Þór Þórðarson, Víðir Sigurðsson, Willum Þór Þórsson, Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson.

Eiríkur Stefán Ásgeirsson, Elvar Geir Magnússon, Hafliði Breiðfjörð, Heimir Hallgrímsson, Magnús Már Einarsson, Sigurbjörn Hreiðarsson, Tómas Þór Þórðarson, Víðir Sigurðsson, Willum Þór Þórsson, Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson.
Spáin:
1. ?
2. ?
3. ?
4. FH 90 stig
5. ÍA 79 stig
6. Valur 73 stig
7. Breiðablik 59 stig
8. ÍBV 54 stig
9. Keflavík 35 stig
10. Grindavík 31 stig
11. Fylkir 30 stig
12. Selfoss 16 stig
Um liðið: Í fyrra kom fyrsta titlalausa ár FH-inga frá því árið 2003. Fimleikafélagið hefur barist um Íslandsmeistaratitilinn undanfarin ár og líklegt er að félagið verði einnig í baráttunni í ár. Talsverðar breytingar hafa verið hjá FH í sumar en nokkrir reyndir leikmenn hafa horfið á braut.
|
Hvað segir Heimir? Heimir Hallgrímsson aðstoðarlandsliðsþjálfari er sérstakur álitsgjafi Fótbolta.net um liðin í Pepsi-deild karla. Heimir hefur náð mjög góðum árangri með lið ÍBV undanfarin ár. Síðastliðið haust var Heimir ráðin aðstoðarþjálfari íslenska landsliðsins eftir að Lars Lagerback var ráðinn þjálfari. Hér að neðan má sjá álit Heimis.
Ég er nokkuð viss að FH ingar móðgist við að vera spáð fjórða sæti. FH-ingar stefna alltaf á sigur.
Styrkleikar: Sigurhefðin er klár styrkleiki hjá Fimleikafélaginu. Tap er aldrei valkostur sem kemur í huga manna. Því spila leikmenn FH alltaf á miklu sjálfstrausti. Góður sóknarleikur hefur verið aðalsmerki FH síðustu ár og verður það vafalaust einnig í ár. Albert Brynjar Ingasonmun að minnsta kosti ekki veikja sóknarleikinn í ár.
Alen Sutej lék ekkert síðasta sumar og mun styrkja varnarleik FH. Það má segja að FH sé að fá nýjan leikmann í honum. Sutej ásamt Guðjóni Árna og Guðmanni Þórissyni eiga eftir að styrkja mikið varnarlínu FH sem oft var brothætt í fyrra.
Veikleikar: Fáir leikmenn voru jafn mikilvægir sínu liði og Matthías Vilhjálmsson hefur verið fyrir FH. Í fyrra var það hann sem dró vagnin þegar liðið var ekki að leika vel. Það verður erfitt að fylla hans skarð.
Flestir þeirra leikmanna sem hafa unnið alla þessa titla síðustu ár hafa farið annað eða hætt. Þó góðir leikmenn hafi fyllt þeirra skörð getur sigurhefðin verið í hættu. Ef ég verð að finna einhvern veikleika í liðinu þá finnst mér vanta sterkan miðjumann í liðið.
Þjálfarinn: Heimir Guðjónsson
Kóngurinn í Krikanum Heimir Guðjónsson hefur þekkt lítið annað síðustu ár en að taka við titlum. Fyrrasumar var titlalaust hjá FH og það verður gaman að fylgjast með því hvernig þjálfarinn spilar úr þessu sumri. Heimir tók við góðu búi af Óla Jó en nú má segja að allir leikmenn FH í dag hafi hann fengið til liðsins eða tekið inn úr yngri flokka starfi félagsins. Aðstoðarmaður Heimis í sumar verður hin brosmildi og geðþekki Guðlaugur Baldursson. Bekkurinn hjá FH verður ekki eins ógnvekjandi eftir brotthvarf vöðvatröllsins Jörundar Áka enda fáir þjálfarar fyllt jafn vel út í svörtu Adidas úlpuna. Laugi þekkir vel til fimleikafélagsins og hefur séð um afreksþjálfun klúbbsins í nokkur ár.
Lykilmenn: Gunnleifur Gunnleifsson, Ólafur Páll Snorrason, Atli Viðar Björnsson.
Gaman að fylgjast með: Nýrri varnarlínu FH og hvernig FH mun höndla brotthvarf Tommy Nielsen.
Líklegt byrjunarlið í upphafi móts:

Stuðningsmaðurinn segir:
Magnús Ólafsson leikari: ,,Maður veit voðalega lítið, það eru svo miklar breytingar hjá FH liðinu. Ég kvíði fyrir sumrinu, maður veit svo lítið. Ég held að það skipti miklu máli fyrir FH liðið að byrja vel en ég á erfitt með að spá fyrir um gengi liðsins. Ég er samt ekki sáttur við þessa spá, ég myndi helst vilja sjá þá í 1-3. sæti, ég myndi gera þá kröfu. Maður er kröfuharður við sitt lið."
Völlurinn:
FH leikur heimaleiki sína á Kaplakrikavelli í Hafnarfirði sem er orðinn einn glæsilegasti völlur landsins. 1900 sæti eru í stúku undir þaki en gegnt henni eru 1150 sæti án þaks. Samtals tekur völlurinn 3050 í sæti og í heildina er völlurinn gefinn upp fyrir að taka 6390 áhorfendur.
Breytingar á liðinu:
Komnir:
Albert Brynjar Ingason frá Fylki
Guðjón Árni Antoníusson frá Keflavík
Guðmann Þórisson frá Nybergsund
Róbert Örn Óskarsson frá ÍR/Víkingi
Alen Sutej, kemur í liðið eftir meiðsli
Albert Brynjar Ingason frá Fylki
Guðjón Árni Antoníusson frá Keflavík
Guðmann Þórisson frá Nybergsund
Róbert Örn Óskarsson frá ÍR/Víkingi
Alen Sutej, kemur í liðið eftir meiðsli
Farnir:
Ásgeir Gunnar Ásgeirsson í Fram
Guðmundur Sævarsson í Hauka
Björn Berg Bryde í Grindavík
Gunnar Kristjánsson í KV
Gunnar Már Guðmundsson í ÍBV
Gunnar Sigurðsson í Fjölni
Helgi Valur Pálsson í BÍ/Bolungarvík á láni
Matthías Vilhjálmsson í Start
Sverrir Garðarsson í ÍBV
Tommy Nielsen hættur
Komnir:
Björgólfur Takefusa frá KR
Baldur Ingimar Aðalsteinsson frá Val
Hörður Sigurjón Bjarnason úr Þrótti
Ingólfur Þórarinsson frá Selfossi
Mark Rutgers frá KR
Pétur Georg Markan frá Fjölni
Róbert Örn Óskarsson frá BÍ/Bolungarvík
Farnir:
Daníel Hjaltason til Modum í Noregi
Jakob Spangsberg
Milos Glogovac í KF
Viktor Örn Guðmundsson í FH (Var á láni)
Robin Faber
Leikmenn FH sumarið 2012:
1. Magnús Þormar
3. Hörður Sigurjón Bjarnason
4. Ingólfur Þórarinsson
5. Mark Rutgers
6. Halldór Smári Sigurðsson
7. Þorvaldur Sveinn Sveinsson
8. Kristinn Magnússon
9. Kjartan Dige
10. Egill Atlason
11. Baldur Ingimar Aðalsteinsson
12. Patrik Atlason
13. Róbert Örn Óskarsson
14. Tómas Guðmundsson
15. Marteinn Briem
16. Pétur Georg Markan
17. Garðar Leifsson
18. Milos Milojevic
19. Svavar Cesar Hjaltested
20. Helgi Sigurðsson
21. Walter Hjaltested
22. Sigurður Egill Lárusson
23. Hjalti Már Hauksson
24. Viktor Jónsson
25. Aron Þrándarson
26. Davíð Atlason
27. Gunnar Helgi Steindórsson
28. Sverrir Þór Garðarsson
30. Björgólfur Takefusa
1. Gunnleifur Gunnleifsson
2. Alen Sutej
3. Guðjón Árni Antoníusson
5. Freyr Bjarnason
7. Pétur Viðarsson
8. Emil Pálsson
9. Hákon Atli Hallfreðsson
10. Björn Daníel Sverrisson
11. Atli Guðnason
13. Bjarki Bergmann Gunnlaugsson
14. Albert Brynjar Ingason
15. Guðmann Þórisson
16. Jón Ragnar Jónsson
17. Atli Viðar Björnsosn
18. Einar Karl Ingvarsson
19. Viktor Smári Segatta
20. Róbert Örn Óskarsson
21. Hafþór Þrastarson
22. Ólafur Páll Snorrason
23. Brynjar Ásgeir Guðmundsson
25. Hólmar Örn Rúnarsson
26. Viktor Örn Guðmundsson
27. Ingimar Elí Hlynsson
Bjarki Már Benediktsson
Kristján Flóki Finnbogason
Leikir FH 2012:
6. maí FH - Grindavík
10. maí FH - Fram
14. maí Selfoss - FH
20. maí FH - Breiðablik
23. maí KR - FH
31. maí FH - Fylkir
16. júní Keflavík - FH
20. júní FH - Stjarnan
30. júní ÍA - FH
15. júlí Valur - FH
22. júlí Grindavík - FH
26. júlí FH - ÍBV
29. júlí Fram - FH
8. ágúst FH - Selfoss
12. ágúst Breiðablik - FH
20. ágúst FH - KR
27. ágúst Fylkir - FH
3. september FH - Keflavík
16. september Stjarnan - FH
20. september FH - ÍA
23. september ÍBV - FH
29. september FH - Valur
Athugasemdir