Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   þri 06. mars 2018 22:43
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Einkunnir Liverpool og Porto: Stoðsendingakóngurinn bestur
Milner er stoðsendingakóngurinn í Meistaradeildinni.
Milner er stoðsendingakóngurinn í Meistaradeildinni.
Mynd: Getty Images
James Milner var maður leiksins í einkunnagjöf Sky Sports er Liverpool gerði markalaust jafntefli við Porto í Meistaradeildinni í kvöld. Liverpool er komið áfram í 8-liða úrslit Meistaradeildarinnar eftir þessi úrslit á Anfield í kvöld.

Liverpool vann fyrri leikinn 5-0.

Milner, sem er stoðsendingahæstur í Meistaradeildinni á þessu tímabili, fær 7 í einkunn, líkt og nokkrir aðrir leikmenn en Sky útnefnir hann sem besta mann vallarins.

Einkunnir Liverpool: Karius (6), Gomez (6), Lovren (7), Matip (7), Moreno (6), Henderson (6), Milner (7), Can (6), Lallana (7), Mane (6), Firmino (5). Varamenn: Ings (6), Salah (6), Klavan (5)

Einkunnir Porto: Casillas (6), Maxi Pereira (6), Felipe (7), Reyes (6), Dalot (6), Oliver (5), Andre Andre (6), Bruno Costa (6), Corona (6), Waris (6), Aboubakar (5). Varamenn: Oliveira (5), Ricardo (5), Paciencia (5)

Maður leiksins: James Milner
Athugasemdir
banner
banner
banner