Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   þri 06. mars 2018 22:35
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Zidane við leikmenn sína: Bravó!
Mynd: Getty Images
„Ég trúi því að þetta var sanngjarn sigur," sagði Zinedine Zidane, stjóri Real Madrid, eftir sigur á Paris Saint-Germain í kvöld.

Með sigrinum tryggði Real sér farseðilinn í 8-liða úrslit Meistaradeildrinnar, en þetta áttunda árið í röð þar sem Madrídingar komast í 8-liða úrslit keppninnar. Liðið hefur þá unnið keppnina tvö ár í röð undir stjórn Zidane.

„Við byrjuðum mjög vel og vorum einbeittir."

„Þetta var erfiður leikur. Ég er ánægður. Ég verð að hrósa leikmönnunum þar sem þeir eru inn á vellinum. Bravó!"

PSG tapar ekki oft í París en það gerðist í kvöld.

„Þetta er erfiður völlur að koma, andrúmsloftið er stórkostlegt. Við áttum skilið að komast í gegnum þetta einvígi."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner