Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fös 08. desember 2017 15:19
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Getur ekki lofað því að Coutinho verði áfram
Mynd: Getty Images
Ekki er víst að Philippe Coutinho verði mikið lengur í herbúðum Liverpool. Framkvæmdastjóri félagsins, Peter Moore, getur ekki lofað því að Brasilíumaðurinn verði áfram.

Coutinho bað um sölu frá Liverpool í sumar eftir að nokkrum tilboðum Barcelona í hann var hafnað. Hann var hins vegar ekki seldur og hefur verið að spila gríðarlega vel með Liverpool að undanförnu.

Áhugi Barcelona er kominn aftur inn í umræðuna og talað hefur verið um að hann gæti jafnvel farið í janúar.

„Ég á ekki með kristalkúlu sem ég get séð framtíðina í, ég veit ekki hvað mun gerast. Philippe er leikmaður Liverpool núna og hann er að standa sig vel," sagði Moore við Sky Sports.

„Þið kannski spyrjið Jurgen Klopp út í þetta þegar þið hittið hann seinna í dag!"

Viti menn, Jurgen Klopp, var líka spurður út í Coutinho.

„Enginn hefur hingað til sagt við mig að Phil muni fara í janúar. Ég er ánægður með stöðuna," sagði Klopp.
Athugasemdir
banner
banner