Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 09. desember 2017 13:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mascherano „of gamall" fyrir Tianjin
Mynd: Getty Images
Javier Mascherano mun ekki ganga í raðir kínverska liðsins Tianjin Quanjian þar sem hann er „of gamall".

Mascherano er væntanlega á förum frá Barcelona. Hann hefur verið orðaður við heimkomu til Argentínu sem og lið í Kína. Hann hefur verið orðaður við Tianjin en hann er þó ekki á leið þangað.

„Þessar sögusagnir eru ósannar," sagði talsmaður Tianjin við Tianjin Today Evening News eftir að hafa fengið spurningu um Mascherano og hvort hann væri á leiðinni.

„Við höfum ekki hugsað um að kaupa Mascherano til félagsins á þessum tímapunkti."

„Við stefnum að því að ná betri árangri á næsta tímabili og Mascherano er of gamall til að vera í plönum okkar."

Mascherano er aðeins 33 ára gamall.
Athugasemdir
banner