Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 12. mars 2018 00:02
Ívan Guðjón Baldursson
Zaza reyndi að skalla olnboga til að fiska spjald
Mynd: Getty Images
Simone Zaza var í byrjunarliði Valencia í 2-0 útisigri gegn Sevilla um helgina.

Valencia var 1-0 yfir þegar Zaza reyndi að fiska spjald á leikmann Sevilla sem var með boltann.

Zaza elti andstæðinginn en í stað þess að reyna að ná knettinum þá beygði hann hausinn niður og reyndi að skalla olnbogann hans í von um að fiska aukaspyrnu og jafnvel spjald.

Myndbandið sem er hægt að sjá hér fyrir neðan lýsir atvikinu betur en þúsund orð.




Athugasemdir
banner
banner
banner
banner