Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 13. janúar 2017 14:04
Magnús Már Einarsson
Zlatan og Rojo líklega með gegn Liverpool
Zlatan Ibrahimovic.
Zlatan Ibrahimovic.
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho, stjóri Manchester United, reiknar með að bæði Zlatan Ibrahimovic og Marcos Rojo verði klárir í slaginn fyrir leikinn gegn Liverpool á sunnudag.

Zlatan missti af leiknum gegn Hull í deildabikarnum í vikunni vegna veikinda á meðan Rojo var ekki með vegna meiðsla sem hann varð fyrir gegn Reading um síðustu helgi.

Aðspurður hvort þeir verði klárir á sunnudag svaraði Mourinho: „Ég held það."

„Ég get samt ekki staðfest það því að það eru tveir dagar í leik. Þeir eru samt nær því að vera klárir heldur en ekki."


Erkifjendurnir í Manchester United og Liverpool mætast á Old Trafford klukkan 16:00 á sunnudaginn.
Athugasemdir
banner
banner
banner