Ari Freyr Skúlason spilaði allan leikinn með Lokeren í 3-0 sigri á Eupen í belgíska boltanum í kvöld.
Ari Freyr og félagar voru 1-0 yfir í hálfleik en í seinni hálfleik skoruðu þeir tvö mörk til viðbótar og tryggðu sér öruggan og þægilegan sigur.
Búið er að skipta deildinni upp í riðla og er Lokeren nú í 6 liða riðli þar sem efsta liðið fer í umspil til að komast í Evrópudeildina.
Lokeren er einmitt í efsta sæti riðilsins og er í lykilstöðu til að komast í umspilið.
Ari Freyr verður líklegast í landsliðshópi Íslands á HM í Rússlandi í sumar sem hefst í júní.

Athugasemdir