Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
   fim 17. nóvember 2016 22:00
Jóhann Ingi Hafþórsson
Egilshöll
Halldór Björnsson: Velkomnir í landsliðið strákar!
Halldór Björnsson
Halldór Björnsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Halldór Björnsson, þjálfari U-17 ára landsliðsins viðurkenndi það fúslega að Þjóðverjar væru einu og jafnvel tveim númerum of stórir fyrir sitt lið í dag.

Þýskaland er eitt besta landslið heims í þessum árgangi og sást það á 7-2 sigri þeirra á strákunum okkar. Halldór var sáttur við að fá leik gegn jafn sterku liði.

Lestu um leikinn: Ísland 2 -  7 Þýskaland

„Þeir eru einu eða tveim númerum of stórir fyrir okkur en það var gott fyrir okkur að fá að máta okkur við eitt besta U-17 ára landslið í heimi."

„Við eigum langt í land. Það er að trufla okkur að það eru tveir mánuðir síðan tímabilið kláraðist á meðan þeir eru á tímabilinu hjá sér. Það er svo gott að sjá hvað er langt í þá bestu."

Hann segir leikmenn með þessi gæði, bíði þeirra stráka sem komast út í atvinnumennsku.

„Okkar leikmenn vilja allir komast í atvinnumennsku og það er þetta sem bíður þeirra. Leikmenn á þessu kaliberi. Við þurfum að leggja mikið á okkur ef við ætlum að fara alla leið."

Þýskaland var sérstaklega sterkt í seinni hálfleik og unnu hann 3-0. Íslenska liðið fékk varla að snerta boltann á stórum köflum undir lok leiksins.

„Það sem við gerðum í seinni hálfleik var að gefa strákum fyrsta landsleikinn. Þeir fengu lærdóm í dag. Velkomnir í landsliðið strákar!"

Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner