Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 18. janúar 2018 21:32
Ívan Guðjón Baldursson
Fótbolta.net mótið: Arnór og Bergþór afgreiddu Mosfellinga
Mynd: Fótbolti.net - Benóný Þórhallsson
Bergþór Ingi Smárason og Arnór Björnsson gerðu mörk Njarðvíkinga er þeir lögðu Aftureldingu að velli í eina leik dagsins í Fótbolta.net mótinu.

Georg Guðjónsson kom Aftureldingu yfir í fyrri hálfleik og jafnaði Arnór skömmu síðar og var staðan jöfn í hálfleik.

Heimamenn mættu grimmir til leiks í síðari hálfleik og áttu Mosfellingar engin svör.

Njarðvíkingar gerðu út um leikinn með þremur mörkum á fyrsta stundarfjórðungi síðari hálfleiks.

Njarðvík er með fjögur stig í riðlinum eftir jafntefli við Gróttu í fyrstu umferð. Afturelding er í öðru sæti eftir góðan sigur gegn Ólafsvíkingum.

Njarðvík 4 - 1 Afturelding
0-1 Georg Guðjónsson ('25)
1-1 Arnór Björnsson ('35)
2-1 Bergþór Ingi Smárason ('48)
3-1 Bergþór Ingi Smárason ('55)
4-1 Arnór Björnsson ('58)
Athugasemdir
banner
banner