Sky Sports segir Sunderland hafa samþykkt tilboð í norður-írska varnartengiliðinn Paddy McNair.
McNair kom upp gegnum unglingastarf Manchester United en þótti ekki nógu góður og var seldur til Sunderland eftir 27 leiki fyrir aðallið Rauðu djöflanna.
McNair féll tvö ár í röð með Sunderland og þarf félagið að selja sem flesta leikmenn til að halda sér á floti fjárhagslega. Því hefur rétt rúmlega 5 milljón punda tilboð frá Middlesbrough verið samþykkt.
McNair er 23 ára og getur leikið í vörn og á miðjunni.
Athugasemdir