Immobile er markahæstur í ítölsku deildinni, með 22 mörk og 8 stoðsendingar. Mauro Icardi er í öðru sæti, með 18 mörk
Lazio 2 - 0 Verona
1-0 Ciro Immobile ('56)
2-0 Ciro Immobile ('60)
1-0 Ciro Immobile ('56)
2-0 Ciro Immobile ('60)
Lazio var búið að tapa fjórum leikjum af síðustu fimm þegar Hellas Verona kíkti í heimsókn í ítalska boltanum í kvöld.
Heimamenn mættu í leikinn af miklum krafti og áttu 22 skot í fyrri hálfleik án þess að boltinn færi inn. Staðan var því markalaus þegar lið gengu til búningsklefa.
Gestirnir frá Verona virtust öruggari í upphafi síðari hálfleiks en markamaskínan Ciro Immobile komst í gang og slökkti á vonum gestanna.
Immobile skoraði tvennu á fjórum mínútum og komust heimamenn nálægt því að bæta meira við en lokatölur voru 2-0.
Lazio komst yfir Inter og upp í fjórða sæti með sigrinum. Verona er sem fyrr á fallsvæðinu.
Athugasemdir