Stuðningsmaður Middlesbrough kom sér í klemmu í gær þegar hann kastaði af sér þvagi í flösku markvarðar QPR þegar liðin mættust í Championship-deildinni í gær.
Myndband var tekið í stúkunni sem sýnir manninn pissa í flöskuna áður en hann kastar henni aftur að markinu.
Ekki er vitað hvort markvörður QPR, Alex Smithies, hafi seinna drukkið úr flöskunni eða hvort hann hafi tekið eftir þessu.

Samkvæmt stuðningsmönnum á vellinum var manninum vísað af vellinum og í kjölfarið var hann færður í varðhald.
Hann er núna laus gegn tryggingu en þarf að mæta fyrir dómara í næsta mánuði eftir hegðun sína í gær.
Middlesbrough vann leikinn 3-0.
A Middlesbrough fan pissed in Smithies water bottle today and threw it back to him. Hope he didn’t drink any.
— Keith (@smoggyontour86) January 20, 2018
Athugasemdir