Blackburn 2 - 0 Millwall
1-0 Rudy Gestede ('78 )
2-0 Jordan Rhodes ('90 )
1-0 Rudy Gestede ('78 )
2-0 Jordan Rhodes ('90 )
Staðan var lengi markalaus í eina leik kvöldsins í Championship-deildinni en Blackburn og Millwall mættust á Ewood Park leikvanginum.
Gestirnir áttu fleiri skot á markið en það eru víst mörkin sem telja. Blackburn tók forystuna á 78. mínútu þegar landsliðsmaður Benín, Rudy Gestede, skoraði.
Millwall freistaði þess að jafna metin en Jordan Rhodes skoraði í uppbótartíma og innsiglaði sigur Blackburn sem er í níunda sæti.
Millwall er í fallsæti, fjórum stigum frá Kára Árnasyni og félögum í Rotherham sem eru í öruggu sæti þar fyrir ofan.
Athugasemdir