Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 21. júní 2017 15:00
Magnús Már Einarsson
Bayern svarar Lewandowski sögum - Engar viðræður um sölu
Markaskorari.
Markaskorari.
Mynd: Getty Images
Bayern Munchen segir ekkert til í sögusögnum þess efnis að framherjinn Robert Lewandowski sá förum frá félaginu.

Eins og við greindum frá í morgun þá eru sögur um að Lewandowski sé ósáttur hjá Bayern og að Chelsea hafi áhuga á honum.

„Lewandowski vill ekki fara frá Bayern. Það eru engar viðræður í gangi við önnur félög og það verða engar viðræður," sagði talsmaður Bayern í dag.

„Samningur Lewandowski rennur út árið 2021. Hann skrifaði fyrir ekki svo löngu undir nýjan samning."

„Ef önnur félög reyna að ræða við samningsbundna leikmenn þá gætu þau fengið refsingu frá FIFA."

Athugasemdir
banner
banner