Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 22. júlí 2017 15:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Darren Randolph til Middlesbrough (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Middlesbrough hefur gengið frá kaupum á markverðinum Darren Randolph, en það var staðfest í dag.

Randolph kemur til Boro frá West Ham á 5 milljónir punda.

Hann skrifar undir fjögurra ára samning við Middlesbrough, sem féll úr ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð.

„Ég er gríðarlega ánægður að hafa skrifað undir og að þetta sé allt klárt," sagði Randolph við heimasíðu Middlesbrough.

Randolph spilaði 22 leiki með West Ham á síðustu leiktíð, en eftir komu Joe Hart varð ljóst að hann myndi ekki spila mikið.

Hann ákvað því að leita annað og Middlesbrough varð fyrir valinu.



Athugasemdir
banner
banner
banner