Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 23. mars 2018 13:32
Arnar Daði Arnarsson
Orri Sigurður til HamKam (Staðfest)
Mynd: Sarpsborg
Varnarmaðurinn, Orri Sigurður Ómarsson hefur verið lánaður til HamKam frá Sarpsborg 08 í Noregi.

Orri Sigurður gekk í raðir Sarpsborg fyrir tímabilið frá Íslandsmeisturum Vals en hefur nú verið lánaður til 1. deildarliðs HamKam. Þetta tilkynnti félagið á heimasíðu sinni nú rétt í þessu.

Orri Sigurður hefur ekki verið í leikmannahópi Sarpsborg í fyrstu tveimur leikjum liðsins á tímabilinu en Sarpsborg eru með fjögur stig í deildinni.

1. deildin í Noregi hefst 2. apríl og verður Orri löglegur með liðinu þegar það mæti Ullensaker / Kisa í fyrstu umferð.
HamKam eru nýliðar í 1. deildinni en þeir sigruðu 2. deildina nokkuð sannfærandi á síðasta tímabili.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner