4. umferð
Íslenska útgáfan af Innkastinu er á dagskrá eftir hverja umferð í Pepsi-deildinni í sumar. Einnig verður af og til litið niður í Inkasso-deildina og bikarkeppnina.
Elvar Geir Magnússon og Magnús Már Einarsson fara yfir umferðina með fréttariturum og sérfræðingum.
Í dag eru allir leikir fjórðu umferðar skoðaðir og er Brynjar Ingi Erluson með Elvari og Magnúsi. Farið er yfir helstu fréttirnar, félagaskiptagluggann og bikarkeppnina.
Í þættinum: Handritið að því að Milos fór í Breiðablik, Víkingslið í lausu lofti, Kemur Logi til bjargar?, hárblásari í Ólafsvík, Andri Rúnar í sviðsljósinu, Íslandsmeistararnir töpuðu vegna fréttar Fótbolta.net, Stjörnustuð, KA-menn pirraðir vegna umræðunnar, Garðar er Jermain Defoe íslenska boltans, Inkasso-deildin.
Sjá einnig:
Hlustaðu á Innkastið gegnum Podcast forrit
Hlustaðu á eldri þætti af Innkastinu
Athugasemdir