Peter Crouch, framherji Stoke, segist ekki vera á þeim buxunum að hætta á næstunni.
Crouch verður 37 ára á næsta tímabili en hann er elsti framherjinn í ensku úrvalsdeildinni.
Crouch verður 37 ára á næsta tímabili en hann er elsti framherjinn í ensku úrvalsdeildinni.
„Það gerir mig ennþá hungraðari að komast á þann aldur þar sem fólk reiknar með því að þú hættir," sagði Crouch en hann gerði nýjan tveggja ára samning við Stoke í fyrra.
„Ég vil spila lengi í viðbót. Ég elska það sem ég er að gera."
„Að koma á æfingu á hverjum degi og eiga síðan leik í lok vikunnar er eitthvað sem ég elska og vil gera."
Athugasemdir