Angel Di Maria mun líklega ganga til liðs við Manchester United í næstu viku samkvæmt fréttum frá Englandi.
Talið er að Manchester United muni borga Real Madrid um 50 milljónir punda fyrir leikmanninn.
Guillem Balague, sérfræðingur Sky í spænska boltanum, segir að Di Maria vilji sjálfur ganga í raðir Manchester United og að liðsfélagi hans Cristiano Ronaldo hafi gefið félaginu góð meðmæli.
Di Maria var fyrr í sumar sterklega orðaður við PSG en franska félagið ákvað að hætta við að fá hann í sínar raðir.
Di Maria er 26 ára gamall Argentínumaður en hann kom til Real Madrid frá Benfica árið 2010.
Athugasemdir