KA 0 - 1 Þróttur R.
0-1 Ragnar Pétursson ('90)
0-1 Ragnar Pétursson ('90)
Ragnar Pétursson reyndist hetja Þróttara í kvöld þegar skoraði síðbúið sigurmark liðsins í dramatískum 1-0 sigri á KA á útivelli.
Markið skoraði Ragnar á 90. mínútu eftir fínan undirbúning Aron Green á kantinum. Var þetta sjötta mark Ragnars í deildinni í sumar.
Bæði lið höfðu fengið tækifæri til að skora skömmu fyrir mark Ragnars, en stigin þrjú voru afar kærkomin fyrir Þrótt í toppbaráttunni.
Þróttarar hafa nú 24 stig og eru jafnir ÍA að stigum í 2. og 3. sæti deildarinnar. KA situr í 5. sæti með 20 stig.
Athugasemdir