Espen Hoff er liðsfélagi Matthíasar Vilhjálmssonar hjá IK Start í norsku efstu deildinni.
Start tapaði í dag á heimavelli þegar Sarpsborg 08 kom í heimsókn og fékk Hoff beint rautt spjald á 40. mínútu leiksins.
Start tapaði í dag á heimavelli þegar Sarpsborg 08 kom í heimsókn og fékk Hoff beint rautt spjald á 40. mínútu leiksins.
Hoff var ekki sáttur þegar hann gekk af velli og á leið inn göngin tók hann tilhlaup til að sparka í eitthvað í bræðiskasti, nema að hann rann og datt beint á rassinn.
Þetta náðist allt á myndband, netverjum til mikillar gleði, en myndbandið má sjá hér fyrir neðan.
Matthías skoraði jöfnunarmark Start í leiknum áður en gestirnir gerðu sigurmarkið á 86. mínútu.
Athugasemdir