Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 26. nóvember 2016 19:45
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Championship: Leeds með sigur
Odemwingie fékk rautt spjald fyrir ljótt olnbogaskot
Odemwingie fékk rautt spjald fyrir ljótt olnbogaskot
Mynd: Getty Images
Rotherham 1 - 2 Leeds
0-1 Chris Wood ('15 )
0-2 Souleymane Doukara ('45 )
1-2 Wood ('87 )



Leeds United sótti lið Rotherham heim í dag. Fyrir leik voru liðin á sitt hvorum stað deildarinnar, Leeds í 9. sæti en Rotherham í botnsætinu.

Leeds komust yfir eftir stundafjórðung og ekki hjálpaði til fyrir heimamenn að Odemwingie fékk rautt spjald fyrir ljótt olnbogaskot eftir rúman hálftíma leik. Leeds bætti svo við öðru marki undir lok fyrri hálfleiks.

Rotherham komu sterkir til leik í seinni hálfleik, einum færri og náðu að klóra í bakkann á 87. mínútu. Urðu lokatölurnar 2-1 sigur hjá Leeds og voru Rotherham óheppnir að jafna ekki leikinn.

Með sigrinum komst Leeds upp í 5. sæti deildarinnar, eða umspilssæti en Rotherham situr sem fastast á botninum, 11 stigum frá öruggu sæti.
Athugasemdir
banner
banner
banner