Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fim 27. apríl 2017 07:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Vill frekar deyja en að spila fyrir PSG
Gignac elskar Marseille.
Gignac elskar Marseille.
Mynd: Getty Images
Franski sóknarmaðurinn Andre-Pierre Gignac segist frekar vilja deyja en að semja við Paris Saint-Germain.

Hinn 31 árs gamli Gignac er mikill aðdáandi Marseille, en þar spilaði hann í fimm tímabil áður en hann flutti til Mexíkó þar sem hann spilar í dag með Tigres þar í landi.

Hann heldur þó enn upp á Marseille, sem eru erkifjendur PSG, og vill gera allt annað en að semja við Parísarliðið.

„Ég hata PSG - ég vil frekar deyja en að semja við þá," sagði hann í viðtali við Life and Style.

„Ef PSG myndi bjóða mér tíu sinnum meiri pening, þá myndi ég samt ekki fara þangað," sagði hann einnig.
Athugasemdir
banner
banner
banner