Belgískir fjölmiðlar greina frá því að Lokeren hafi náð samkomulagi við Rúnar Kristinsson um að taka við þjálfun liðsins en áður hafði mbl.is greint frá því samkvæmt sínum heimildum.
Het laatste Niuews segir að Rúnar muni sitja fyrir svörum sem nýr þjálfari á fréttamannafundi á morgun.
Het laatste Niuews segir að Rúnar muni sitja fyrir svörum sem nýr þjálfari á fréttamannafundi á morgun.
Rúnar tekur við af Georges Leekens sem látinn var taka pokann sinn. Lokeren er í 13. sæti af sextán liðum í belgísku úrvalsdeildinni.
Rúnar er mikils metinn Lokeren enda lék hann með liðinu 2000-2007 og var gríðarlega vinsæll meðal stuðningsmanna en mbl.is greindi frá því samkvæmt heimildum
Rúnari var í síðasta mánuði rekinn frá Lilleström í Noregi eftir að hafa verið þar við stjórnvölinn í tæplega tvö ár. Áður þjálfaði hann KR í fjögur ár og gerði liðið tvívegis að Íslandsmeisturum.
Landsliðsmennirnir Ari Freyr Skúlason og Sverrir Ingi Ingason spila með Lokeren.
Arnar Þór Viðarsson er aðstoðarþjálfari Lokeren og hefur stýrt æfingum eftir að Leekens var rekinn en ekki hefur verið gefið út hvort hann verði hægri hönd Rúnars.
Athugasemdir