Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 29. maí 2017 10:50
Fótbolti.net
Lið 5. umferðar: Geggjaðir Grindvíkingar
Albert Hafsteinsson fagnar marki sínu í Eyjum.  Hann er í liði umferðarinnar.
Albert Hafsteinsson fagnar marki sínu í Eyjum. Hann er í liði umferðarinnar.
Mynd: Raggi Óla
Björn Berg Bryde (til hægri) var öflugur í vörninni gegn Val í gær.
Björn Berg Bryde (til hægri) var öflugur í vörninni gegn Val í gær.
Mynd: Fótbolti.net - Benóný Þórhallsson
Grindvíkingar eru fjölmennir í úrvalsliði umferðarinnar í Pepsi-deildinni. Óli Stefán Flóventsson, þjálfari Grindvíkinga, er þjálfari umferðarinnar eftir 1-0 sigur á Val.

Kristijan Jajalo, Björn Berg Bryde og Gunnar Þorsteinsson áttu allir góðan dag í liði Grindavíkur og þær fá allir sæti í liði umferðarinnar.

Jósef Kristinn Jósefsson lagði upp þrjú mörk og Hólmbert Aron Friðjónsson skoraði tvö í sterkum 3-1 útisigri Stjörnunnar á Fjölni í Grafarvogi.

ÍA landaði sínum fyrsta sigri á tímabilinu í Vestmannaeyjum. Arnar Már Guðjónsson og Albert Hafsteinsson skoruðu báðir glæsileg mörk þar og þeir eru í úrvalsliðinu.

Í stórmeistarajafntefli KR og FH skoruðu reynsluboltarnir Óskar Örn Hauksson og Atli Guðnason báðir lagleg mörk.

Damir Muminovic var maður leiksins þegar Breiðablik lagði Víking Ólafsvík og á Akureyrarvelli var Almarr Ormarsson maður leiksins í 2-2 jafntefli KA og Víkings R.

Sjá einnig:
Lið 4. umferðar
Lið 3. umferðar
Lið 2. umferðar
Lið 1. umferðar
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner