Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 29. júlí 2015 17:00
Magnús Már Einarsson
Caulker til Southampton á láni (Staðfest)
Caulker kom til QPR í fyrra.
Caulker kom til QPR í fyrra.
Mynd: QPR
Southampton hefur fengið varnarmanninn Steven Caulker á láni frá QPR.

Toby Alderweireld er horfinn á braut úr vörn Southampton frá síðasta tímabili og varnarmaðurinn Florin Gardos verður einnig frá keppni næstu mánuðina.

Ronald Koeman, stjóri Southampton, ákvað því að krækja í Caulker.

Caulker er 23 ára gamall en hann kom til QPR frá Cardiff í fyrra.

Hann gat þó ekki hjálpað QPR að forðast fall úr ensku úrvalsdeildinni síðastliðið vor.
Athugasemdir
banner
banner
banner